134. löggjafarþing — 10. fundur,  13. júní 2007.

Stjórnarráð Íslands.

1. mál
[15:47]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að við út af fyrir sig skiljum alveg sjónarmið háttvirts þingmanns. Vandinn er bara sá að ef þessi sjónarmið eiga við þá eiga þau ekki bara við um Stjórnarráðið heldur um allan opinbera vinnumarkaðinn. Það má þá alveg eins heimfæra þau á allar stofnanir ríkisins út af fyrir sig. Það er það sem menn hafa verið að segja í þessari umræðu. Þetta kann að vera fyrsta skrefið í þá átt að afnema auglýsingaskylduna, ekki bara í Stjórnarráðinu heldur í öllum stofnunum ríkisins. Því hljótum við auðvitað að vara við.

Ég held að ef þessi sjónarmið hv. þm. Karls Matthíassonar eiga við þá eigi þau ekki bara við um Stjórnarráðið afmarkað heldur um allan opinbera vinnumarkaðinn.