134. löggjafarþing — 10. fundur,  13. júní 2007.

Stjórnarráð Íslands.

1. mál
[15:48]
Hlusta

Karl V. Matthíasson (Sf) (andsvar):

Ég tek undir orð hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar. Þetta var svona almennt um ráðningar og hæfi. Það má t.d. horfa til þjóðkirkjunnar. Við getum hugsað okkur prest sem hefur þjónað á stað þar sem ekki hefur verið sérstaklega vinsælt að vera prestur, menn sækja t.d. meira í þéttbýli en dreifbýli. Við sjáum það á umsóknum þegar losnar prestsembætti t.d. hér í Reykjavík eða Kópavogi eða í þéttbýlinu, þá sækja mun fleiri um en ef auglýst er úti á landi. Því miður er það bara þannig. Það er bara veruleikinn.

Síðan sækir um prestur utan af landi, búinn að vera prestur í 10–15 ár og verið dyggur og trúr í sínum störfum. Svo kemur einhver ungur og nýr með kannski aðeins fleiri próf. Á hann þá að fá embættið eða hinn sem stóð sína plikt og sinnti þjónustu? Um þetta er þetta náttúrlega almennt togstreita og um það hvernig siðferði á að vera hjá okkur.

Ég reikna með því að ráðherrarnir sem fá valdið í hendur muni reyna að vera heiðarlegir í sínum störfum. Við stöndum náttúrlega alltaf frammi fyrir því, sem erum alþingismenn. Við tökum stundum þátt í því að hafa áhrif á hver er kosinn í nefnd, í ráð eða eitthvað svoleiðis. Hvernig vinnum við sjálf þegar þannig er valið? Förum við yfir völlinn og segjum: Já, nú ætla ég að vera rosalega faglegur og réttlátur? Eða kemur inn freistingin og segir: Bíddu, þessi er vinur minn og ég ætla að hygla þessum?

Þetta er hluti mennskunnar. Við eigum náttúrlega, (Gripið fram í.) sá yðar sem syndlaus er, já. (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Takk, góð ábending. (Gripið fram í.) Við erum syndug í Samfylkingunni, en þið saklaus í Vinstri grænum.