134. löggjafarþing — 10. fundur,  13. júní 2007.

þingfrestun.

[16:36]
Hlusta

Siv Friðleifsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Fyrsta þing að afloknum alþingiskosningum er alltaf sérstakt. Nýir alþingismenn hafa bæst í hópinn og því til viðbótar hefur ný ríkisstjórn tekið við landstjórninni. Ríkisstjórnin hefur óvenjulega mikinn meiri hluta að baki sér í þinginu að þessu sinni. Við slíkar aðstæður er hlutverk stjórnarandstöðunnar sérlega mikilvægt og undirstrikar nauðsyn þess að vel sé búið að stjórnarandstöðunni til að hún geti rækt hlutverk sitt sómasamlega. Í reynd er það svo að það kemur fyrst og fremst í hlut stjórnarandstöðunnar að halda uppi þinglegu eftirliti með gjörðum ríkisstjórnarinnar. Við munum gera okkur far um að standa undir þessari ábyrgð og veita meiri hlutanum nauðsynlegt aðhald um leið og við munum styðja þau mál sem til bóta horfa fyrir landsmenn.

Ég þakka nýkjörnum forseta ágæta samvinnu á þessu vorþingi og vænti áframhaldandi góðs samstarfs við hann á komandi þingi. Ég óska honum og fjölskyldu hans, þingmönnum öllum og starfsfólki Alþingis góðs sumars og þess að við hittumst öll heil að loknu sumarhléi.

Ég bið hv. þingmenn að taka undir orð mín og óskir með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]