135. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2007.

drengskaparheit.

[16:03]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Við fráfall Einars Odds Kristjánssonar, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, tekur sæti hans Herdís Þórðardóttir.

Kjörbréf Herdísar Þórðardóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Herdís Þórðardóttir, 8. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]