135. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2007.

afbrigði um dagskrármál.

[16:06]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálsgr. 3. gr. þingskapa um hvernig hluta skal um sæti þingmanna, þannig að hv. þm. Helgi Hjörvar geti fengið sæti sem hentar fyrir þann búnað sem hann þarf að hafa í þingsalnum meðan þingfundur stendur. Þetta er sæti 32 fyrir hv. þm. Helga Hjörvar.

Enn fremur hefur orðið samkomulag milli forseta og formanna þingflokka að leggja til að tekin verði frá sæti næst inngangi í salnum fyrir formennina en þeir dragi innbyrðis um þau sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.

Samkvæmt þessu hlýtur Arnbjörg Sveinsdóttir sæti 8, Kristinn H. Gunnarsson sæti 22, Lúðvík Bergvinsson sæti 23, Siv Friðleifsdóttir sæti 45 og Ögmundur Jónasson sæti 44.