135. löggjafarþing — 2. fundur,  2. okt. 2007.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:51]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkar forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Samfylkingin, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 12. þingmaður Suðvest., í annarri umferð og Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og landbúnaðarráðherra, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, 4. þingmaður Norðaust., í fyrstu umferð, í annarri Álfheiður Ingadóttir, 11. þingmaður Reykv. s., og í þriðju umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 5. þingmaður Reykv. s.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Ásta R. Jóhannesdóttir, 8. þingmaður Reykv. s., í annarri og Kristján Möller samgönguráðherra í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Guðni Ágústsson, 3. þingmaður Suðurk., í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Sverrisdóttir, 2. þingmaður Norðaust., og í þriðju umferð Bjarni Harðarson, 8. þingmaður Suðurk.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þingmaður Norðvest., Jón Magnússon, 10. þingmaður Reykv. s., í annarri umferð en í þriðju umferð Grétar Mar Jónsson, 10. þingmaður Suðurk.