135. löggjafarþing — 2. fundur,  2. okt. 2007.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:20]
Hlusta

Valgerður Sverrisdóttir (F):

Hæstv. forseti, kæru landsmenn. Ég vil byrja á því að þakka forsætisráðherra fyrir að nefna bæði í upphafi ræðu sinnar og í lokaorðum að síðasta ríkisstjórn hafi skilað góðu búi og að lífsgæði hér á landi nú séu með því besta sem gerist í heiminum.

Á þessum tímamótum er mikilvægt að þetta liggi fyrir. Það er líka mikilvægt að það liggi fyrir að Framsóknarflokkurinn átti aðild að þeirri ríkisstjórn sem fór frá. Miðað við styrkleika stjórnarflokkanna má vera að hér sé að hefjast samstarf sem vara mun lengi en þó eru nú þegar mjög sterkar vísbendingar uppi um að það verði skammvinnt.

Ég tók eftir því að forsætisráðherra reyndi að afsaka ríkisstjórnina þegar hann hitti flokksmenn sína í Valhöll nýlega og sagði að það tæki tíma að hrista saman ólíka flokka.

Þjóðin er mjög spennt að vita hversu langan tíma það muni hugsanlega taka. Fólki leiðist hringlandaháttur.

Það sem mér finnst alvarlegast við ræðu forsætisráðherra er að þar er ekki að finna neina framtíðarsýn. Það er þessi tilhneiging að ýta málunum á undan sér í þeirri von að úr rætist. Atburðir dagsins í dag þegar vatnalögunum var frestað um ár eru eitt dæmi um þetta.

Ef einhvers staðar er að finna stefnu til framtíðar má segja að það sé stefnan um að lækka skatta á einstaklinga og fyrirtæki.

Það verður athyglisvert að fylgjast með umræðunni innan ríkisstjórnarinnar um skattamálin. Í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar var skattur á fyrirtæki lækkaður. Samfylkingin var á móti því. Þá var skattur á einstaklinga lækkaður. Samfylkingin var á móti því. Hátekjuskattur var afnuminn. Samfylkingin var á móti því.

Miðað við reynsluna af hinni nýju Samfylkingu, sem er Samfylkingin í ríkisstjórn, mun hana sjálfsagt ekki muna um að éta öll stóru orðin ofan í sig um þetta efni — svona eins og á einum eftirmiðdegi.

Enda vorum við upplýst um það í vor af einum þingmanni flokksins að kosningaloforðin giltu ekki lengur af því að Samfylkingin fór í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.

Ljótasti leikurinn var að mínu mati svikin við unga fólkið, fólkið sem var að kjósa í fyrsta sinn og hélt að það mætti treysta stjórnmálamönnum. Samfylkingin lofaði styrkjum til bókakaupa fyrir framhaldsskólanemendur. Einhvers konar ávísunum var dreift til nemenda, sem sagt innstæðulausum ávísunum. Góð fyrirmynd fyrir ungt fólk eða hitt þá heldur.

Þrátt fyrir það að ríkisstjórnin hafi nú lagt fram fjárlagafrumvarp sem hljóðar upp á hátt í 20% hækkun frá fjárlagafrumvarpi síðasta árs var ekki svigrúm til að standa við loforðin við unga fólkið. Og formaður Samfylkingarinnar afsakaði sig með því að fyrrverandi ríkisstjórn hefði stofnað til svo mikilla útgjalda á síðustu vikum fyrir kosningar.

Með þeim orðum gagnrýndi hún að sjálfsögðu fyrst og fremst samstarfsráðherra í ríkisstjórninni, þ.e. fjármálaráðherrann. Fagráðherrar stofna til skuldbindinga ríkissjóðs án samþykkis hans. Ég get hins vegar tekið undir það með formanninum að það voru lausatök í ríkisfjármálum á þessum umrædda tíma og margt kom mér einkennilega fyrir sjónir þegar ég fylgdist með fréttum sjónvarpsins úr kjördæmi mínu.

Hæstv. forsætisráðherra sér fyrir sér að fram undan sé tímabil aukins stöðugleika. Það er óskandi að þar verði forsætisráðherra sannspár. Hann minnist ekki einu orði í ræðu sinni á óstöðugleika gjaldmiðilsins og hátt gengi. Samkvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er íslenska krónan 15–25% of hátt skráð með tilheyrandi erfiðleikum fyrir útflutningsgreinar.

Í ræðu sem ráðherrann flutti nýlega í Valhöll um gámaflutninga o.fl. lét hann koma fram að hann gæti hugsað sér að endurskoða afstöðu til Evrópumála og evrunnar eftir einhver ár ef það væri best fyrir þjóðina.

Almennt séð þurfa stjórnmálaflokkar ekki að taka fram að stefnumál þeirra miðist við það sem þeir telji best fyrir þjóðina en einhverra hluta vegna hefur forsætisráðherra talið rétt að hafa sérstaklega orð á þessu.

Svokallaðar mótvægisaðgerðir hafa verið mikið til umræðu á síðustu vikum vegna mikils niðurskurðar á þorskveiðiheimildum.

Langmikilvægast hvað varðar mótvægisaðgerðir er að stofna til varanlegra starfa á landsbyggðinni, vel launaðra starfa sem treysta má að verði til framtíðar. Hvernig stæðum við í dag ef ekki hefði orðið af stóriðjuframkvæmdum fyrir austan? Hvernig stæðum við ef Samfylkingunni hefði tekist að stöðva þær framkvæmdir eins og hún svo sannanlega reyndi að gera? Og ég spyr: Mun Samfylkingin líka reyna að koma í veg fyrir uppbygginguna á Bakka við Húsavík? Hvernig er með rannsóknarleyfið í Gjástykki? Það hefur ekkert heyrst frá iðnaðarráðherranum hvað hann hefur í hyggju. (Iðnrh.: Jú.) Þetta segi ég vegna þess að ráðherrann hefur ákveðið að banna rannsóknir.

Annað mál þessu tengt er loftslagsmálin. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar eftir að gildistíma Kyoto-bókunarinnar lýkur árið 2012? Mikil verðmæti felast í íslenska ákvæðinu svokallaða sem náðist fram vegna öflugrar baráttu undir forustu framsóknarráðherra á sínum tíma. Ég hef verulegar áhyggjur af að ríkisstjórnin muni mæta óundirbúin og ósamstæð til leiks þegar kemur að því að semja um framhaldið. Ég minni á orð Össurar Skarphéðinssonar, núverandi iðnaðarráðherra, þegar íslensk stjórnvöld kynntu kröfur sínar um að sérstakt tillit yrði tekið til íslenskra aðstæðna vegna þess að við byggjum orkuframleiðslu okkar á endurnýjanlegri orku og eigum heimsmet í þeim efnum. Hann sagði að tillögur Íslands yrðu „hlegnar út af borðinu“. Þetta er ekki beinlínis til þess fallið að vekja traust á ríkisstjórninni eins og hún er skipuð í dag.

Að síðustu nokkur orð um vandræðalegustu uppákomu sumarsins, þegar hæstv. utanríkisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ákvað að kalla heim íslenska upplýsingafulltrúann sem hefur starfað innan NATO, heim frá Írak. Ráðherrann virðist ekki hafa gert greinarmun á innrásinni annars vegar og uppbyggingarstarfinu hins vegar, hún hefur ákveðið að hjálpa ekki þessari hrjáðu þjóð á leið sinni til lýðræðis.

Góðir landsmenn. Að lokum þetta: Sú stefnufesta sem einkenndi fyrrverandi ríkisstjórn með aðild Framsóknarflokksins er horfin. Í staðinn er komin ósamstæð ríkisstjórn með enga framtíðarsýn.

Stefnuræðan er besti vitnisburður um þessa staðreynd. — Góðar stundir.