135. löggjafarþing — 4. fundur,  4. okt. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[10:36]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Áður en umræðan hefst vill forseti geta þess að samkomulag er á milli þingflokkanna um ræðutíma í umræðunni, sbr. 2. mgr. 72. gr. þingskapa, og hún verður eins og á síðasta þingi. Ræðutíminn er sem hér segir: Ráðherra hefur 35 mínútur í framsögu, síðan 15 mínútur og í þriðja lagi 10 mínútur. Talsmenn þingflokka hafa 20 mínútur í fyrstu umferð og síðan tvisvar sinnum 10 mínútur. Aðrir þingmenn hafa 10 mínútur tvívegis. Enn fremur er samkomulag um að andsvör verði leyfð frá upphafi umræðunnar, þó þannig að í fyrstu umferð verður aðeins talsmönnum þingflokkanna og fjármálaráðherra heimilt að veita andsvör. Það er mjög mikilvægt að hv. þingmenn átti sig á þessu. Gert er ráð fyrir að umræðu ljúki síðar í dag eða í kvöld eftir atvikum.