fjárlög 2008.
Herra forseti. Það er auðvitað mjög spennandi að heyra fyrstu viðbrögð stjórnarandstöðunnar við fyrsta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Það er líka spennandi að sjá stjórnmálaflokkinn Vinstri græn vera núna í fyrsta skipti stærsta flokkinn í stjórnarandstöðunni og þar með er fulltrúi þess flokks fyrsti ræðumaðurinn til þess að koma með innlegg á eftir ræðu fjármálaráðherrans.
Ég get hins vegar ekki annað sagt en að innleggið veldur mér gríðarlegum vonbrigðum. Innleggið er bara tuð og fjas um að það sé óvissa í þessu og óvissa í hinu og það sé ekkert hægt að vinna af því að það sé svo mikil óvissa í þessu. Það kemur ekki fram ein einasta tillaga, (Gripið fram í.) það er engin hugmyndafræði í gangi, þetta er eiginlega nákvæmlega eins og í utandagskrárumræðunum hérna í gær þar sem fulltrúar flokksins töluðu. Þeir voru ekki með neinar tillögur sjálfir um eitt eða neitt, það var bara talað um að þetta eða hitt væri ómögulegt og ekki hægt að vinna af því að það væri svo mikil óvissa. Þetta er dálítið aumt hjá þeim, ég verð að viðurkenna það. (Gripið fram í.)
Varðandi spurninguna um verkaskiptingu og mótvægisaðgerðir er einmitt gerð grein fyrir því að þeim fjármunum sem í það verður varið, og kemur fram í frumvarpinu að verði varið til þessara mála, verður skipt niður á einstaka liði við 2. umr. samkvæmt tillögum sem þá koma fram. Hluta af þessu er ekki búið að samþykkja sem lög enn sem komið er og það þarf auðvitað að gera á haustþinginu en ég held að hv. þingmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þessum liðum í mjög langan tíma, þeim verður komið skilmerkilega fyrir áður en búið verður að afgreiða fjárlögin.