135. löggjafarþing — 4. fundur,  4. okt. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[11:04]
Hlusta

Bjarni Harðarson (F) (andsvar):

Herra forseti. Við höfum hlýtt á hæstv. fjármálaráðherra við 1. umr. fjárlagafrumvarp og það er margt gott í þeim pappírum.

Eitt hafði ég ekki skilið fyrr en í dag, þ.e. með hvaða hætti fjárveitingavaldið er í raun algjörlega fært til framkvæmdarvaldsins í þessu frumvarpi. Fjármálaráðherra upplýsti það — ég óskaði skýrari svara við því hvort ég hefði skilið hann rétt — í umræðunni áðan að frumvarp þetta væri vel við vöxt vegna þess að kannski væri kreppa á leiðinni, kannski mundi syrta í álinn og kannski þyrfti mikla peninga.

Þetta er auðvitað mjög góð leið fyrir sterkan þingmeirihluta að ráðstafa það bólgið í alla liði að alls staðar megi skilja eftir afganga. Staða ríkissjóðs er vissulega góð eins og hérna hefur komið fram og ný ríkisstjórn sest að miklu veisluborði. Mér hugnast þó ekki sú aðferð, ég held að hún geti verið háskaleg fyrir hagkerfið, fyrir efnahagsþróunina og þau skilaboð sem ríkið sendir út í samfélagið, að gefa út fjárlög langt umfram vöxt og kannski hreinlega fjárlög langt umfram það sem stendur til að verja af opinberu fé.

Þetta fer mjög að líkjast kosningavíxlum frá því í vor. Ég óska eftir því að hinn sterki meiri hluti komi sér út úr kosningahamnum, út úr loforðahamnum, og láti okkur fá fjárlög sem hafa eitthvað með það að gera hvernig þetta á að verða.