fjárlög 2008.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Bjarnasyni fyrir spurningu hans. Ég held að hann hafi ætlað að beina til mín tveimur en náði bara annarri, um sjálfstæða stofnun, efnahagsstofu, sem mundi vinna með þinginu í mati á þessum hlutum.
Efnahags- og skattanefnd mun fara yfir tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins og mun gera það jafnfaglega og aðrar nefndir hverju sinni. Það hefur verið það vinnulag, eins og hv. þingmaður veit, að menn hafa ekki verið með þá skrifstofu sem þingmaðurinn er að kalla eftir. Hins vegar hefur fjármálaráðherra, svo og ég sem formaður fjárlaganefndar, verið að boða ákveðið breytt vinnulag við fjárlagagerðina og við eftirlit með framkvæmd fjárlaga, svo og um leið að leggja inn svokölluð rammafjárlög. Þetta eru auðvitað gríðarlega umfangsmiklar breytingar en hvort þær kalli á að umrædd sjálfstæð skrifstofa sem hv. þingmaður er að kalla eftir verði að veruleika vil ég ekki tjá mig um á þessu stigi því að umræðan varðandi hin málin á einfaldlega eftir að þroskast.
Ég vil ítreka að forseti þingsins hefur lagt mikla áherslu á það að aðbúnaður og tækifæri til að mynda stjórnarandstöðu til að koma að málum sem lúta að þessum þáttum verði efldur og ég held að það sé samhugur á þinginu gagnvart þeim málum.