135. löggjafarþing — 4. fundur,  4. okt. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[15:30]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Á öllum sviðum munu einkaframkvæmd og einkarekstur koma til greina, segir hv. formaður heilbrigðisnefndar, Ásta Möller, og ruglar síðan saman einkarekstri og félagslegum rekstri í einkahlutafélögum, sem rekin eru til þess eins að skila eigendum sínum og fjárfestum í þeim arði, og sjálfseignarstofnunum, svo sem eins og SÍBS, DAS, Krabbameinsfélaginu og öðrum þeim félagslegu stofnunum sem á undanförnum árum og áratugum hafa rekið mjög góða þjónustu í sátt við ríkið. Í þeim rekstri er það markmiðið að ef einhver arður verður fer hann beina leið til þess að bæta þjónustuna en ekki í vasa einhverra fjárfesta úti í bæ.

Það er talað um að við vinstri græn þekkjum ekki mun á einkarekstri og einkavæðingu en ég bið talsmenn Sjálfstæðisflokksins að gera greinarmun á því sem heitir rekstur í hagnaðarskyni og rekstur til félagslegra þarfa. „Profit“ og „non-profit“ heitir það á tungumáli sem menn skilja kannski.

Erindi mitt hingað er að spyrja hvort hv. þingmaður er tilbúinn til þess að snúa til baka með klúðrið í sambandi við Heilsuverndarstöðina. Í frumvarpinu kemur fram að veita á 20 millj. kr. til þess að stytta biðlista á Miðstöð heilsuverndar barna, setja á 12 millj. kr. í að flytja mæðraskoðun í áhættuhópum inn á Landspítala og setja á ríflega milljón eða tæpa hálfa aðra milljón í að flytja ljósmæður í Heilsugæslustöð í Lágmúla. Það er búið að slíta þessa þjónustu algerlega í sundur og ég spyr hv. formann (Forseti hringir.) heilbrigðisnefndar: Eigum við ekki að snúa við og reyna að þétta þessa þjónustu aftur?