135. löggjafarþing — 4. fundur,  4. okt. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[16:47]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Hvað varðar Íbúðalánasjóð þá er það furðulegur misskilningur sem kemur fram hjá hv. þingmanni að lækki lánshlutfallið létti það greiðslubyrði á íbúðakaupendum. Það er einmitt þveröfugt. Að mati okkar vinstri grænna er það ein af frumþörfum landsmanna að eiga íbúðarhúsnæði og við höfum talið það styrk okkar samfélags að sem flestir ættu sitt eigið húsnæði þó að við teljum líka að það eigi að vera til húsnæði á leigumarkaði á hóflegum kjörum, á hóflegum kjörum sem Íbúðalánasjóður styrkti líka því að ekki veita bankarnir slík kjör. Hv. þingmaður ætti að þekkja það vel til að innkoma bankanna á húsnæðismarkaðinn þýddi stórhækkun á vöxtum og stórhækkun á verði húsnæðis. Og það að lækka lánshlutfall Íbúðalánasjóðs leiddi til þess að þeir sem voru að kaupa sér íbúðarhúsnæði þurftu að taka viðbótina, þessi 10%, og þá sennilega á yfirdráttarlánum með yfir 20% vöxtum. Varð það til að létta greiðslubyrðina eða minnka þensluna í samfélaginu? Nei, herra forseti. Ég sé að hv. þingmaður skilur núna að hann var á villigötum hvað þetta varðaði.

Varðandi hitt, hvort bankarnir séu með óbeinni ríkisábyrgð, hvað mundi hv. þingmaður leggja til ef það lægi fyrir að KB-banki væri að fara á hausinn, sem ég vona að gerist alls ekki og ég veit að styrkur hans stendur styrkum fótum, og þeir sem ættu fjármagn í bankanum ættu á hættu að missa fé sitt eins og var í þessum breska banka? Ég hygg að það mundu renna tvær grímur á marga í þeim efnum. Ég vona reyndar svo sannarlega að bankarnir hér á landi séu svo sterkir að þetta komi ekki fyrir en þetta kom fyrir bankann í Bretlandi og var hann þó talinn sterkur fyrir og ríkið vildi ekki láta það falla á almenning í Bretlandi.