fjárlög 2008.
Herra forseti. Það var mjög athyglisvert að heyra ræðu fyrrv. formanns fjárlaganefndar um þetta fjárlagafrumvarp. Hann er kominn í hlutverk stjórnarandstöðunnar. Þegar maður veltir því fyrir sér um hvaða fjárveitingar er að ræða sem hann vísar til að séu þensluhvetjandi, ef við tökum frá það sem er talið að séu reiknuð útgjöld og tilfallandi ófyrirséð útgjöld eins og mótvægisaðgerðir, aftur til skattkrafna, brotthvarfs varnarliðsins sem hv. þingmaður þekkir vel og vaxtamunar á lánum til leiguíbúða, þá eru 25 milljarðar kr. sem eru stefnumarkandi útgjöld. Af þessum 25 milljörðum eru 17 milljarðar í samgönguframkvæmdir, 2,4 milljarðar í háskólarannsóknir, 2,3 milljarðar í hjúkrunarheimili og endurhæfingu, tæpir 2 milljarðar í minni tekjutengingar almannatrygginga og 1 milljarður í málefni fatlaðra. Eru þetta atriði sem hv. þingmaður telur að valdi þenslunni? Eru þetta hlutirnir sem hann er á móti í frumvarpinu og hefur mestar áhyggjur af núna eftir að hann er kominn úr stjórnarsamstarfinu?
Samgönguáætlunin er að mestu leyti á bak við útgjöldin, mál sem við samþykktum sameiginlega í vor, málefni fatlaðra sem ráðherrar Framsóknarflokksins höfðu mikinn áhuga á á þeim tíma sem þeir voru í félagsmálaráðuneytinu. Ég tala nú ekki um hjúkrunarheimilin og almannatryggingarnar sem ráðherrar Framsóknarflokksins höfðu mikinn áhuga á meðan þeir voru í heilbrigðisráðuneytinu. Er áhugi Framsóknarflokksins ekki lengur á þessum málum? Eiga þau ekki að vera þarna? (Forseti hringir.)
Reyndar, herra forseti, tókst okkur við gerð þessara fjárlaga að skila meiri afgangi en okkur tókst sameiginlega nokkru sinni á þeim 12 árum sem við vorum í samstarfi með Framsóknarflokknum.