fjárlög 2008.
Hæstv. forseti. Vissulega er það ný staða að vera kominn í stjórnarandstöðu og þurfa að veita stjórnarmeirihlutanum málefnalegt aðhald. En ég vil minna á að sem formaður fjárlaganefndar varði ég margar óvinsælar aðgerðir sem ríkisstjórnin fór í á sínum tíma til að koma böndum á efnahagslífið og til þess að minnka verðbólguna. Hvaða aðgerðir eru nú í gangi? Eini raunhæfi samanburðurinn á fjárlagafrumvarpinu sem við erum að ræða núna er við fjárlagafrumvarpið sem sett var fram í þinginu fyrir ári. Það er alveg sama hvað hæstv. ráðherra þylur upp, breytingin á milli ára er 17,2%. Ber það vott um að það sé stöðugleiki í samfélaginu? Ber það einhvern vott um það að þessi ríkisstjórn ætli að beita sér fyrir því að ná niður verðbólgunni og óstöðugleikanum? Ég segi nei. Það vill svo til að flestir aðilar á markaði eru sammála því að beita eigi fjárlögum fyrir árið 2008 sem stjórntæki í efnahagsmálum. Það stjórntæki ætlar ríkisstjórnin ekki að nýta sér. Hún hefur einfaldlega gefist upp á verkefninu.
Síðan er staðreyndin, hæstv. forseti, og það var ágætt að heyra álit hæstv. ráðherra á því, að gríðarleg aukning hefur orðið á samneyslunni. Er hún í stefnu og anda Sjálfstæðisflokksins? Samkvæmt frumvarpinu hefur samneyslan ekki verið meiri hlutfallslega síðan árið 1993. Ég hugsa að þegar ungir sjálfstæðismenn fara að veita þingmönnum Sjálfstæðisflokksins einkunnir, eins og þeir eru vanir að gera, muni þingmenn þeirra ekki skora hátt á því prófinu, enginn af þeim. Allir bera ábyrgð á þessu frumvarpi sem við erum að ræða hér, ekki síst hæstv. fjármálaráðherra.