4. fsp.
Herra forseti. Þrem dögum fyrir kosningar og daginn eftir að skipaður var nýr safnstjóri við Náttúruminjasafn Íslands var kynnt samkomulag sem menntamálaráðherra, borgarstjórinn í Reykjavík og háskólarektor gerðu um að leyst hefði verið til frambúðar úr húsnæðisvanda Listaháskóla Íslands. Eðlilega var það öllum áhugamönnum um listmennt til mikillar ánægju og léttis vegna þess að húsnæðismál þessa skóla höfðu verið í miklum vanda.
Sá hængur var á að lóðin sem þarna var til umræðu og Listaháskólinn fékk er samkvæmt staðfestu deiliskipulagi ætluð undir Náttúruhús og var reyndar færð Náttúrugripasafni og Hinu íslenska náttúrufræðifélagi í tilefni af 100 ára afmæli þess á árinu 1989.
Það kom eins og blaut tuska framan í áhugamenn um byggingu Náttúruhúss og náttúrufræðisafns að þessari lóð, sem hefur verið litið á sem heimanmund nýs safns sem lög voru samþykkt um á síðasta þingi, skyldi hafa verið ráðstafað í annað sinn með þessum hætti og það, eins og ég sagði, sama dag nánast og nýr safnstjóri var ráðinn til starfa.
Af þessu tilefni langar mig til að spyrja hæstv. menntamálaráðherra hvort ráðherranum hafi verið kunnugt um samkomulag sem menntamálaráðherra, háskólarektor og borgarstjóri gerðu í tilefni af 100 ára afmæli Hins íslenska náttúrufræðifélags og Náttúrugripasafns Íslands um m.a. staðarval fyrir Náttúruhús á svokölluðum byggingarreit G í Vatnsmýrinni á háskólalóðinni.
Í öðru lagi, hvort hæstv. ráðherra var kunnugt um að á staðfestu deiliskipulagi er áskilnaður og áritun þar sem segir að þessi lóð sé einungis ætluð fyrir Náttúrufræðisafn og tengda starfsemi Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Og að lokum. Ef ráðherranum hæstv. var kunnugt um þetta fyrirheit og áskilnað, af hverju var ekki lögð á það áhersla (Forseti hringir.) að halda í þessa lóð fyrir þá nýstofnað Náttúruminjasafn?