staða íslenskrar tungu.
Hæstv. forseti. Ég vil eins og aðrir hér fagna þessari umræðu og þeirri fyrirspurn sem hér hefur komið fram og svörum hæstv. ráðherra. Þetta er eitt af þeim málum sem við sennilega öll getum verið sammála um í þingsalnum að sé mikilvægt og við viljum vera á varðbergi gagnvart því að tapa ekki tungunni okkar, tungumálinu. Við viljum tryggja stöðu íslenskunnar.
Hvað varðar þá þingsályktun sem hér var samþykkt og hefur komið til umfjöllunar þá mun hæstv. menntamálaráðherra eflaust svara því á eftir hvernig það mál þróaðist í ráðuneytinu, en það er ekki ríkisstjórnin sem slík sem fjallar um einstakar þingsályktunartillögur sem samþykktar eru.
Ég vil bara fyrst og fremst koma hér upp til þess að taka undir með þeim sem hafa látið fögur orð falla um tunguna. Við Íslendingar erum náttúrlega sérfræðingar á ákveðnu sviði sem er að búa til ný orð þegar (Forseti hringir.) nýjungar koma upp til dæmis á tæknisviðinu og margir bera virðingu fyrir okkur fyrir að gera það.