staða íslenskrar tungu.
Hæstv. forseti. Ég vil fagna fyrirspurn hv. þm. Ólafar Nordal og sömuleiðis svari hæstv. menntamálaráðherra Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og annarra þeirra sem hér hafa talað.
Það er meginmarkmið okkar Íslendinga að viðhalda tungunni. Hún er sameiningartákn þjóðarinnar og við þurfum, í þessu öra fjölmenningarsamfélagi sem við byggjum, að leggja megináherslu á að kenna aðfluttum Íslendingum íslenska tungu þannig að þeir upplifi að þeir séu í okkar landi sem hluti þjóðarinnar undir þessu sameiginlega tákni sem íslensk tunga er. Á það ber að leggja höfuðáherslu. Það skiptir meginmáli. Við hin sem fædd erum hér, höfum íslensku að móðurmáli, eigum síðan að sjá um að rækta þann arf sem okkur hefur verið færður.