skattaívilnanir vegna rannsókna- og þróunarverkefna.
Frú forseti. Ég vil fyrir það fyrsta þakka þá umræðu sem hefur farið hér fram um þetta ágæta mál. Ég vil sérstaklega þakka hæstv. iðnaðarráðherra fyrir góð orð í minn garð.
Ég hafði það á tilfinningunni við fyrri ræðu hæstv. iðnaðarráðherra að hann væri nývaknaður og úrillur, (Gripið fram í.) teldi að það væri nótt og fór að tala um myrkrið í augum framsóknarmanna. En í seinni ræðunni hafði hann greinilega fengið sér kaffibolla, var heldur hressari og fór að hrósa okkur framsóknarmönnum fyrir lögin um Nýsköpunarmiðstöðina og fleira þannig að mér sýnist þetta nú allt vera í réttum gangi.
Ég tel að hv. þm. Jón Magnússon misskilji málið. Það kom fram í ræðu hans að við ættum ekki að bæta við skattaívilnunum, hvað þá að taka upp sértæka styrki eða aðstoð. Það er nú einmitt það sem þessi tillaga gengur út á, hér er ekki um sértæka styrki að ræða heldur skipulagða styrki.
Þau fyrirtæki sem hafa reynslu af sama kerfi í Noregi telja að helstu kostir þess séu hversu einfalt, aðgengilegt og skrifræðislaust það er. Umsóknarferlið er opið og hraðvirkt og þau fyrirtæki sem sækja um endurgreiðslu fá svör við umsóknum sínum innan þriggja vikna.
Það er talað um að frekar eigi að lækka skattbyrðina en það nýtist einfaldlega ekki þeim fyrirtækjum sem hafa lagt út fyrir þróunarkostnaði og eru ekki farin að greiða tekjuskatt. Þannig að ég held að þetta kerfi sé bæði einfalt og skilvirkt og komi til með að nýtast öllum fyrirtækjum hvar sem er á landinu.
Ég fagna því sem kom fram hjá hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur. Ég ætla ekki að fara að deila um það hver á hugmyndina að þessu kerfi. Ég held að það sé nú einfaldlega þannig að Norðmenn komu með þetta kerfi og bæði framsóknarmenn og samfylkingarmenn hafa tekið vel í þær hugmyndir enda hafa þær reynst vel í Noregi.
Mig langar til þess að svara þessu örstutt með 30% endurgreiðslustyrk af námslánum. Það var einfaldlega þannig að samfylkingarmenn dreifðu ávísun í mínu kjördæmi sem bauð upp á fríar skólabækur. Ég kalla eftir því að sú ávísun verði lögð fram og það kosningaloforð verði efnt.
Það er í sjálfu sér ekki mikið um þetta að segja. Ég hefði kannski viljað að orðið hefði aðeins málefnalegri umræða um þetta góða mál. Ég finn mjög jákvæða strauma frá Samfylkingunni og tek undir þær skoðanir hv. þm. Katrínar Júlíusdóttur að þetta mál ætti kannski heima hjá iðnaðarnefnd. Ég mæli um að skoðað verði sérstaklega hvort það eigi kannski heima þar vegna þess að ég skynja það líka að hæstv. iðnaðarráðherra er mjög jákvæður gagnvart málinu eða þá einhvers konar sambærilegum leik. En að lokum þakka ég kærlega fyrir umræðuna og vona að tillögunni verði vísað til seinni umræðu.