skattaívilnanir vegna rannsókna- og þróunarverkefna.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp vegna þess að eftir því var kallað að ég svaraði spurningum um námsgögn og bækur. Hv. þm. Höskuldur Þórhallsson hefur farið mikinn í fjölmiðlum og haldið því fram að í stjórnarsáttmálanum sé hvergi neitt um þetta að finna. Ég vil benda hv. þingmanni á að það er rangt. Hann fer með rangt mál hvað það varðar. Undir kaflanum um barnvænt samfélag í stjórnarsáttmálanum er einmitt fjallað um þetta, það er að ríkisstjórnin ætli að fara í niðurgreiðslur á námsgögnum. Þar er gengið lengra en við samfylkingarfólk lögðum til í kosningabaráttunni þar sem við töluðum eingöngu um skólabækur. Í stjórnarsáttmálanum er hins vegar fjallað um námsgögn heildrænt og er þá talið með það sem námsmenn nota hugsanlega í verklegu námi og iðnnámi.
Ég get líka upplýst hv. þingmann um að þessi vinna er nú þegar farin af stað. Það er ekki sama hvernig þetta er gert. Það þarf að finna leiðir til þess. Þessi vinna er nú þegar farin af stað og það verður eins og segir í stjórnarsáttmálanum, á þessu kjörtímabili verður þeim aukna kostnaði sem námsmenn í framhaldsskólum verða að bera mætt. Ég bið hv. þingmann um að fara rétt með opinberlega í þessum efnum, þetta stendur allt í stjórnarsáttmálanum undir kaflanum um barnvænt samfélag. Ég hvet hann til að kynna sér það. Þessu máli verður hrundið í framkvæmd á þessu kjörtímabili.
Hv. þingmaður vísaði í orð mín, það er að ég fagnaði því að þegar framsóknarmenn væru loks farnir að huga að málefnum tækju þeir mál okkar samfylkingarmanna upp í röðum og þar á meðal að breyta námslánum í styrki. Ég fagnaði því sérstaklega áðan vegna þess að hv. þingmaður og núverandi ráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, flutti nákvæmlega eins frumvarp á síðasta þingi. Ég varð að (Forseti hringir.) fagna því að framsóknarmenn væru komnir á sömu blaðsíðu og við í þessum efnum, þó fyrr hefði verið.