135. löggjafarþing — 7. fundur,  10. okt. 2007.

skattaívilnanir vegna rannsókna- og þróunarverkefna.

14. mál
[15:22]
Hlusta

Flm. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Þetta málefni snýst í sjálfu sér ekki um námsgögn þó að umræðan sé aðeins komin út í þá veru. Það var þannig að Samfylkingin á Akureyri dreifði ávísunum til ungs skólafólks þar sem lofað var tiltekinni fjárhæð fyrir þá nemendur sem mundu kjósa Samfylkinguna. Ég mæli með því að sú ávísun verði einfaldlega dregin fram í dagsljósið og farið verði yfir efni hennar í þingsal. Það er að mínu mati alvarlegt að lofa svona upp í ermina á sér, og það ungum kjósendum. Ég hef að minnsta kosti ekki séð að þetta kosningaloforð eigi að efna. En að sjálfsögðu fagna ég því að farin sé af stað vinna við endurgreiðslu á námsgögnum og undir það tökum við framsóknarmenn heils hugar.