veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að rifja það upp, sem sögulegan fróðleik, að ekki eru mjög mörg ár síðan tekin var ákvörðun um að taka steinbít út úr kvóta og þá gerðist það merkilega að kötturinn og kanarífuglinn urðu vinir. Þeir sem áður höfðu borist á banaspjót í sjávarútvegsumræðunni urðu skyndilega miklir vinir og töldu þetta óskaplega vitleysu. Ég held ég muni það rétt að það hafi verið tveir einstaklingar sem hafi varið þessa ákvörðun þáverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra og það vorum við hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson.
Við getum skapað allt eins mörg vandamál með slíkum aðferðum eins og því að hafa hlutina eins og þeir eru í dag. Við höfum einfaldlega tekið þessar ákvarðanir, við erum að reyna að takmarka veiðarnar í tilteknar tegundir og við gerum það með þessum hætti. Þegar aðstæður síðan verða þannig að við þurfum að reyna að auðvelda mönnum aðgang að tilteknum tegundum vegna þess að samsetningin hefur breyst getum við reynt að gera það með ýmsum hætti, til að mynda varðandi þessi hólf. Við vitum það hins vegar, ég og hv. þingmaður, sem báðir þekkjum til í sjávarútveginum, að hlutfall ýsu og þorsks í veiði hefur verið að þróast með ýmsum hætti. Ekki eru mjög mörg ár síðan menn töldu nánast óhugsandi að hægt væri að ná þeim árangri í ýsuveiði á línubáta og menn náðu þegar þorskaflahámarkið var að byrja að festa sig í sessi. Það var mjög athyglisverður árangur sem smábátaeigendur hafa síðan getað nýtt sér. Það sýnir að það er ýmis sveigjanleiki í þessum efnum og það er engin töfratala til um hlutfall ýsu og þorsks í afla eins og við vitum. Við sjáum líka að þegar menn hafa heimildir til þess að stunda veiðar með einhverjum öðrum hætti, t.d. með aðgangi að einhverjum hólfum, verður aflasamsetningin allt önnur.