stjórn fiskveiða.
Forseti. Hér er til umræðu frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða til að koma til móts við þær útgerðir sem orðið hafa fyrir skerðingu veiðiheimilda með niðurskurði aflamarks í þorski. Ráðherra fór ágætlega yfir frumvarpið og þá hugsun sem að baki því býr. Hann útskýrði m.a. hvernig veiðigjaldið hefur verið reiknað út og í raun líkist það æðimikið útreikningum á launaseðli sjómanna. Þetta er hálfgert hlutaskiptakerfi. Menn reikna áætlað aflaverðmæti á flotann, fyrir árið í ár eru það 85 milljarðar kr. Síðan er dregin frá því olía og annar rekstrarkostnaður rétt eins og hjá sjómönnum áður en launin þeirra eru reiknuð út. Þá er fundið út veiðigjald sem var áætlað í ár rétt tæpar 1.100 millj. kr. eða um 2,42 kr. á hvert kíló.
Sú upphæð sem til stendur að fella niður snýr eingöngu að þorski en ekki bara að þessari 30% skerðingu heldur af öllum heimildum, ólíkt því sem gert er í mótvægisaðgerðum annars staðar. Þær aðgerðir voru t.d. raktar í ræðum í dag. Aðrar mótvægisaðgerðir snúa að því að reyna að bæta þessa 30% skerðingu með einhverju móti en í þessu tilfelli er aflagjald af þorski fellt niður í heild sinni, ekki eingöngu þar sem skerðing verður. En upphæðin er ekki há, 275 millj. kr. í þessu samhengi eru kannski rétt um einn þriðji af aflaverðmæti eins togara hér á landi á ári. Því er ekki um neinar gríðarlegar upphæðir hvað það varðar. Ég efast um að þær muni, þegar búið er að deila því niður á þær útgerðir sem skerðast í þorskinum, verða til að þær annaðhvort sökkvi eða fljóti.
Þegar álagning á veiðigjald er skoðuð frekar sést að veiðigjald er líka lagt á aflaheimildir utan lögsögu, þ.e. ekki eingöngu á þorsk í landhelgi og aðrar tegundir heldur líka á þorsk sem veiddur er utan lögsögu, t.d. í norskri lögsögu eða rússneskri. Þar verður ekki sambærileg skerðing að neinu leyti við það sem rætt er um innan lögsögunnar. Þar halda menn heimildum sínum þrátt fyrir það sem gerist á Íslandsmiðum. Þetta er að mörgu leyti dálítið einkennilegt gjald.
Það má nefna að t.d. úthafskarfi er flokkaður niður í fjórar gjaldtegundir, þ.e. úthafskarfa á Reykjanesi innan lögsögu, í öðru lagi úthafskarfa á Reykjaneshrygg utan lögsögu, í þriðja lagi úthafskarfa innan landhelgi og í fjórða lagi úthafskarfa utan landhelgi. Við erum samt sem áður alltaf að tala um sama fiskstofninn. Bæta má við veiðigjaldi á karfa innan íslenskrar lögsögu, sem sagt djúpkarfa, sem er enn og aftur sami fiskurinn. Menn taka þennan stofn og búta niður í mismunandi gjaldflokka eftir því hvar hann veiðist burt séð frá því hvaða kostnaður er þar að baki eða hvert verðmætið er. Hið eina sem aðskilur þessa stofna, þ.e. þessar tegundir, er að það skiptir máli hvar hann er veiddur upp á afurðaverðið að gera. (GMJ: Úthafskarfinn í Smugunni.) Já, þar fyrir utan. Hann er sennilega eitthvað „innviklaður“ í þetta að auki. En þarna fyrir utan er reiknað veiðigjald á fiskstofna utan landhelgi í rússneskri og norskri lögsögu og sömuleiðis veiðigjald á rækju sem veidd er á Flæmingjagrunni o.s.frv.
Þetta útskýrir að hluta til tilgang veiðigjaldsins, sem er ekki sá sem hv. þm. Karl Matthíasson sagði áðan að væri sáttargjörð á milli þjóðar og útgerðar, um sameign þjóðarinnar. Svo er alls ekki. Þvert á móti undirstrikar gjaldið eignarhaldið sem útgerðarmenn krefjast á þessum veiðiheimildum. Eftir að gjaldið var tekið upp á sínum tíma og eftir að það hefur verið í gildi í nokkuð mörg ár þá fara menn að líta á það sem sína eign, sem þeir hafi borgað fyrir. Þetta gengur þvert á þau markmið sem hv. þm. Karl Matthíasson taldi að veiðigjald ætti að snúast um. Það gerir það bara alls ekki. Þetta var þrautalending á sínum tíma til að koma á gjaldi, m.a. til að standa undir ýmsum kostnaði varðandi sjávarútveginn, rannsóknir, veiðistýringu og annað í þeim dúr, hvað sem okkur finnst um það.
Ég bendi á, líkt og ég gerði í ræðu fyrr í dag, að fleira er að gerast í sjávarútveginum en eingöngu samdráttur í útgerð vegna niðurskurðar á þorski. Sjómenn og fiskverkafólk verður fyrir mikilli tekjuskerðingu eins og komið hefur fram við þessa umræðu, mikilli tekjuskerðingu. Lausnin þar felst í, eins og ég sagði áðan, að reyna að bæta upp þá 30% skerðingu en ekki meira. Menn hafa viðurkennt það og að sjálfsögðu gengist við því enda ekki annað hægt enda erfitt ef ekki ómögulegt að bæta það. Gagnvart útgerðinni á að bæta þetta allt frá upphafi til enda hvað þorskinn varðar. Þarna skarast auðvitað aðgerðir, annars vegar gagnvart útgerð og hins vegar gagnvart sjómönnum og fiskverkafólki.
Samningar eru lausir víða í samfélaginu í dag, kjarasamningar hjá launafólki sem er að brýna hnífana og ætlar að krefjast launahækkana, mikilla kjarabóta. Fólk flýr úr ákveðnum stéttum. Við þurfum ekki að ræða mikið um það en fólk flýr úr umönnunarstéttum, kennarastétt og öðrum stéttum. Getum við ímyndað okkur hvað gerðist í stéttarfélögum þessa fólks, hvers konar línu þau legðu fyrir kjarabaráttu sína, ef félagsmenn þeirra hefðu kannski misst 20 eða 25% af launum sínum með beinum hætti vegna stjórnvaldsaðgerða? Ætli það fólk væri í vinnu í dag? Hefðu menn ekki hreinlega látið sig hverfa? En þetta blasir við okkur í dag í sjávarútveginum. Það er tómt mál fyrir okkur að tala um að fá það til baka með einhverju móti.
Það eru fleiri gjöld sem tengjast ríki og útgerð. Ég hef haldið því fram, stundum í gamni en stundum af meiri alvöru, að sjávarútvegur eða útgerð á Íslandi sé sennilega mest ríkisstyrkti atvinnuvegur á landinu. Hvers vegna segi ég það? Í fyrsta lagi: Í upphafi var veiðiheimildum útdeilt samkvæmt reglum sem þá voru ákveðnar án nokkurrar gjaldtöku, án nokkurs gjalds. Menn fengu afhentan aðgang að auðlindinni með kvótasetningu og þurftu ekki að greiða krónu fyrir það. Þeir fengu kvótann til sín og gátu ráðstafað að eigin vild og hafa gert það síðan. Það er enginn smástyrkur, enginn smástuðningur og það voru bara örfáir aðilar í sjávarútvegi sem fengu hann. (Gripið fram í.) Síðan að auki — ég veit að það er viðkvæmt mál í minni stétt — hefur útgerðin verið styrkt til að greiða niður laun sjómanna um langan tíma í formi sjómannaafsláttar. Það var á sínum tíma samkomulag á milli sjómanna og útgerðarmanna ríkisins um að sjómenn ættu rétt á launabótum, sem útgerðin treysti sér ekki til að greiða og ríkið tók að sér að gera. Það er auðvitað ekkert nema niðurgreiðsla á launum sem sléttar kannski út leigugjaldið að hluta þótt við sitjum með það óbætt sjómennirnir. Það eru víða gjöld sem fara til sjávarútvegsins á milli ríkis og útgerðar.
Ég tel að áhrif af lækkun veiðigjalds, gjalds sem ýtir undir kröfur þeirra sem hafa yfir veiðiheimildum að ráða um að það sé þeirra eign, veiðigjaldið eykur þá kröfu, hvetji til áframhaldandi framsals á veiðiheimildum og leigu án þess að snerta nokkurn tíma þá sem menn hafa rætt um, t.d. bæta kjör sjómanna og fiskverkafólks. Því fólki kemur ekki til góðs að sköttum verði aflétt af útgerðinni. Það hef ég aldrei upplifað nokkurn tíma. Ég hef aldrei upplifað það eða notið góðs af því að gjöld hafi verið færð af útgerð. Þetta mun hins vegar hafa áhrif á leiguverð á þorski og framsal á þorski. Menn fá þá kvótann fyrir annan pening, ef svo má segja, eftir að gjaldið hefur verið fellt niður, heldur en áður. En það mun ekki skila sér í vasa sjómanna.
Leigubraskið og framsalið eru að mínu mati langvanmetnasti áhrifavaldurinn varðandi fiskstofnana. Fyrir viku eða svo var endanlega staðfest, sem margir sjómenn hafa viljað halda fram um langan tíma, að fleiri en einn fiskstofn væru við landið, þ.e. þorskstofnar. Það var staðfest af vísindamanni fyrir skemmstu, þ.e. að það er einn hægvaxta stofn fyrir norðan land og tveir hraðvaxta stofnar út af Suðurlandi, einn á grunnslóð og einn á djúpslóð. Þeir eru erfðafræðilega aðskildir. Framsalið hefur haft þau áhrif, t.d. á netabátaútgerð sem var mjög öflug og sterk við Suðurlandið — menn veiddu þar stóran fisk, kannski 180 eða 120 fiska í tonni og öfluðu sér veiðiheimilda með slíkum veiðiskap — að sú útgerð hefur nánast lagst af. Netaútgerð hefur nánast lagt af. Þær veiðiheimildir hafa síðan verið fluttar frá Suðurlandi úr formi netafisks jafnvel norður í land, jafnvel norður í Húnaflóa eða í Eyjafjörð þar sem sömu heimildir eru fylltar af fiski sem þarf kannski 500–600 stykki í tonnið á móti 100 áður og að auki úr öðrum stofni. Það þarf ekki að ræða ítarlega um hvaða áhrif það hefur á þann stofn ef hann hugsanlega hefur enga burði til að bera þá veiði. Þetta er nánast sambærilegt við að ætla sér að skera niður veiði í laxveiðiá á Suðurlandi um helming en auka hana um helming á Norðurlandi, fá jafnmarga laxa á land, bara úr öðrum stofni. Þetta mun hafa gríðarleg áhrif á viðgang þorskstofnsins, sem er reyndar orðið viðurkennt. Reyndar snerist umrædd rannsókn ekki beint að veiðinni en vísbendingarnar eru mjög sterkar hvað þessi áhrif varðar.
Talsvert hefur verið rætt um Hafrannsóknastofnun varðandi fiskveiðiráðgjöfina og einnig veiðigjaldið, þ.e. áhrif fiskveiðiráðgjafarinnar á veiðigjaldið. Þess vegna ræðum við um þetta hér. Ég vil ekki gera lítið úr vísindamönnum Hafrannsóknastofnunar. Það geri ég ekki. Ég þekki þá að góðu einu. Þeir vinna sína vinnu og þeir leggja fram tillögur um veiðar og stöðu fiskstofna eftir bestu vitund. Ég hef átt við þá ágætissamstarf í gegnum árin.
Það er ekki deilt um það meðal sjómanna hvort færri fiskar eru í sjónum í dag en voru fyrir 30 árum eða 20 árum eða 50 árum. Það þarf ekki að deila um það. Við vitum að það eru færri fiskar í sjónum en voru fyrir daga fiskveiðistjórnarkerfisins. Það eru kannski örfáar hræður sem mótmæla því en það eru ekki góð rök á bak við þau mótmæli. Spurningin er hins vegar: Hvers vegna eru færri fiskar í sjónum í dag en voru áður en við fórum að stýra veiðunum? Hvernig stendur á því að þegar við gripum í taumana, þegar við þóttumst sjá að allt væri að fara til fjandans, hefur ástandinu farið aftur, þrátt fyrir það að við höfum fylgt niðurstöðum og ráðleggingum Hafrannsóknastofnunar í öllum veiðiheimildum, öllum fiskikvótum, hvort sem við tölum um ýsu, þorsk, ufsa, karfa, loðnu eða grálúðu. Þrátt fyrir að hafa fylgt því eftir til hins ýtrasta, öllum ráðleggingum, þá er staðan svona. Það er rangt sem hefur komið fram, sem orðræðan hefur snúist um, að við séum að ofveiða þorsk ár eftir ár. Það er beinlínis rangt. Tölur Hafrannsóknastofnunar sýna annað.
Þegar við veiðum um og innan við 1% af veiðistofninum umfram ráðleggingarnar, langt innan þeirra skekkjumarka sem Hafrannsóknastofnun sjálf setur, þá er það ekki ofveiði. Á undanförnum 11 árum hefur einu sinni verið veitt meira en 3% umfram af veiðistofni en Hafrannsóknastofnun hefur ráðlagt. Það er ekki ofveiði. Þessi 3% fóru ofan í smábátana sem misstu sig eitthvað eitt árið. Við höfum fylgt eftir ráðgjöf um loðnu nánast upp á kíló. Við höfum fylgt eftir ráðleggingunum, yfir milljón tonn upp í 1,6 millj. tonn held ég þegar það var mest. Við erum komin niður í 300 þús. tonn í ár og erum í basli með að ná því. Við höfum fylgt eftir ráðleggingum í grálúðu alveg þar til síðustu árin vegna þess að við höfum ekki getað fylgt þeim eftir. Við náum ekki grálúðunni. Það er alltaf gefinn út sami kvótinn burt séð frá veiðinni og við erum langt frá því að ná henni. Sama sagan er í ýsu. Það er reyndar eini fiskstofninn sem við höfum ekki veitt eftir ráðleggingum Hafrannsóknastofnunar. Við höfum árum saman veitt þriðjungi meira en ráðleggingarnar kveða á um og jafnvel 50% meira. Fyrir 5 árum veiddum við 50% meira af ýsu heldur en okkur var ráðlagt að gera og frá þeim degi hafa ráðleggingar ráðherra og Hafrannsóknastofnunar um ráðlagðan ársskammt í ýsu aukist um 250%.
Ég er ekki að segja þetta til að gera lítið úr vísindum Hafrannsóknastofnunar, langt frá því, heldur til að vekja athygli á því á því að þetta er ekki svart/hvít mynd. Það eru margir þættir sem stjórna því hvernig fiskstofnarnir standa.
Mér heyrist ekki vera vilji til þess núna á Alþingi frekar en áður, að takast á við þennan vanda, kjarna málsins, um hvernig við stjórnum veiðunum, hvernig við ætlum að byggja upp fiskstofnana. Það er ekki vilji til þess að horfa til reynslunnar og nota reynslu okkar bæði við fiskveiðar og stjórnina til að snúa við af þeirri braut sem við höfum fylgt. Það væri hins vegar besta mótvægisaðgerð sem við gætum tekið upp. Það hlýtur að fara að renna upp fyrir flestum að við höfum verið að gera eitthvað rangt fyrst við náum aldrei árangri og ef markmið laga við stjórn fiskveiða eru svo gersamlega á röngunni að þau eru farin að vinna í þveröfuga átt við það sem þeim er ætlað, að byggja upp fiskstofna, efla atvinnu, auka hagkvæmni o.s.frv. Ekkert af þessu hefur gengið upp. Við þurfum að víkja af þeirri leið.
Það er líka rétt sem kom fram áðan hjá hv. þm. Árna Johnsen að vandinn í sjávarútvegi er víðar en á Vestfjörðum án þess að ég ætli að gera lítið úr honum þar. En ég tel rétt að vekja athygli á því að þetta er vandi sem er um allt land. Sem betur fer eru augu manna að opnast fyrir því við hvað er að kljást í þessu samhengi og mig langar að ljúka máli mínu á að vitna, með leyfi forseta, í orð sem sögð voru í 17. júní-ræðu vestur á Fjörðum:
„Áform okkar um að byggja upp fiskstofnana með kvótakerfinu sem stjórnkerfi fiskveiða virðist hafa mistekist. Sú staða kallar á allsherjaruppstokkun á fiskveiðistjórnarkerfinu ef marka má niðurstöðu Hafrannsóknastofnunar.“
Þetta eru orð sem núverandi forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, lét falla á 17. júní í sumar.