135. löggjafarþing — 8. fundur,  11. okt. 2007.

brottfall vatnalaga.

8. mál
[20:11]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta voru athyglisverðar og fróðlegar hugleiðingar hjá hv. þingmanni. Vissulega lýsir það mikilli eðlisbreytingu á þjóðfélaginu þegar réttindi og auðlindir eru skilgreind með þessum hætti, frá því sem áður var, þegar menn gengu um tiltölulega frjálsir og nýttu land og sjó að eigin vild. Þessar auðlindir voru ekki eign eins eða neins heldur miklu frekar almennings sem gat gengið í þær eftir þörfum. Ég hygg að þeir tímar séu að baki að flestu leyti. Það þarf ekki að vera að öllu leyti en ég held að það þurfi að gæta að því að virða réttindi og frelsi manna til að umgangast þær auðlindir og nýta að vissu marki. Menn mega ekki missa sjónar á því.

Menn þurfa líka að virða atvinnurétt manna, réttinn til að nýta auðlindirnar. Það má ekki verða svo þröngt skilgreint, eins og reyndin hefur orðið í löggjöfinni um stjórn fiskveiða, að menn hafi ekki aðgang að því að nýta þessa auðlind öðruvísi en að kaupa hana af millilið sem hefur nokkurn veginn frjálsar hendur um hvernig hann ástundar þau viðskipti. Það er afar óeðlilegt fyrirkomulag og hefur oft verið farið yfir það hér í ræðustól.

Stjórnarfrumvarpið í þessu máli er aðeins um frestun. Það þýðir, virðulegi forseti, verði það samþykkt sem ég býst nú við, að lögin taka engu að síður gildi nema Alþingi grípi inn í ferilinn áður en árið er liðið. Þess vegna er það ófullnægjandi til lengri tíma að búa við frestun og þarf að vinna að endanlegri breytingu á löggjöfinni.