aukinn þorskafli á fiskveiðiárinu 2007/2008.
Hæstv. forseti. Jú, ég sé þó nokkurn ávinning í því að auka hafrannsóknir, hef alltaf verið á þeirri skoðun að það væri mjög gott að auka hafrannsóknir og hef viljað að þær væru stundaðar af fleirum en bara Hafrannsóknastofnun og hef mælt fyrir því. Ég hef t.d. oft spurt að því: Hverju máli skiptir einn fjörður á Vestfjörðum af þeim 49 fjörðum sem þar eru? Hvað elst upp í einum firði? Hver hefur svarað því? Hafrannsóknastofnun? Nei. Hafrannsóknastofnun hefur alls ekki svarað því, aldrei, hún hefur aldrei leitast við að svara því þó að við séum búin að horfa á að það séu þorskseiði í Húnaflóa og í Ísafjarðardjúpi, áratugum saman. Það eru því næg verkefni sem hægt er að bæta við.
Ég hafna því sem hv. þingmaður sagði að ég sæi ekkert gott í verkum Hafró. Það er ekki svo. Ég hef hins vegar athugasemdir við það þegar ég sé (Forseti hringir.) að sum útleggingin passar ekki við þá reynslu sem ég tel mig hafa.