135. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2007.

sala áfengis og tóbaks.

6. mál
[15:43]
Hlusta

Flm. (Sigurður Kári Kristjánsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að reyna að svara þeim spurningum sem hv. þingmaður varpaði fram. Mér heyrðist að hv. þingmaður hafi verið að ýja að því að einhver sveitarfélög í landinu hefðu gefið afslátt á þá reglu að 20 ára aldur væri skilyrði fyrir því, eða 18 ára aldur væri forsenda þess að tóbak yrði afgreitt. Er það réttur skilningur hjá mér og ef svo er getur þá hv. þingmaður upplýst mig um hvaða sveitarfélög það eru? Það væri fróðlegt að fá það fram vegna þess að ég þekki það ekki.

En þetta mál fjallar ekki um tóbak. Það fjallar um áfengi og hv. þingmaður vék að afgreiðslufólkinu, spurði í rauninni hvort ekki væri hætta á því að unglingar væru að selja unglingum. Ég held að svo sé ekki. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fólk þurfi að vera orðið 20 ára til að afgreiða þessar vörur en það liggur í hlutarins eðli að sveitarfélag mun náttúrlega svipta viðkomandi verslunarmann leyfi gerist hann uppvís að því að fara ekki að þeim reglum.

Þar fyrir utan tel ég að afgreiðslufólk sem vinnur hjá einkaaðilum sé ekkert verra en opinberir starfsmenn og því sé líkt og öðrum fullkomlega treystandi til að sinna þessari verslun.

Hv. þingmaður spurði hvort ég teldi að áfengi væri eins og hver önnur neysluvara. Í sjálfu sér er áfengi það ekki þó að í ýmsum löndum sé litið á vín sem landbúnaðarafurð. Ég held að það felist ókostir í áfengi eins og í mörgum öðrum neysluvörum, t.d. majónesi. Ef þú notar það í óhófi þá er hætt við því að illa fari fyrir þér. Samt sem áður bönnum við ekki majónesið eða reynum að skerða aðgengi að því.