sala áfengis og tóbaks.
Herra forseti. Það gleður mig að sjá hve fáir flutningsmanna frumvarpsins eru hér staddir og sérstaklega mjög fáir þeirra sem eru búnir að vera aftur og aftur á málinu. Mér finnst það bera góðan vott um að það er ekkert mjög mikill þungi eða mikil áhersla sem þeir vilja leggja á að þetta mál komist í gegn. Ef það væri mikill áhugi og djúp alvara í þessu máli hjá þeim mundi þetta fólk náttúrlega láta sjá sig í sölum Alþingis. Finnst mér ágætt út af fyrir sig og staðfesta það að þetta er ekki mál sem Alþingi þarf að leggja áherslu á að verði afgreitt. Það er búið að taka það fyrir á þingi nokkrum sinnum og menn hafa spjallað um það út og suður. Við skulum bara halda því áfram næstu árin, það er eðlilegt að svona umræða fari fram.
Mig langar til að vekja athygli á því líka, herra forseti, að í greinargerðinni er lögð mjög mikil áhersla á viðskipti, atvinnurekstur ríkisins og allt þetta, að ríkið hafi dregið sig út úr alls konar atvinnurekstri og að Áfengisverslun ríkisins sé þess vegna mótsögn. Auðvitað hefur margt breyst í þessum efnum sem er að mörgu leyti ágætt, en svo eru til undantekningar sem er allt í lagi að hafa. Þá er ég að hugsa um þetta mál. Það frumvarp sem lagt er hér fram, frumvarp til laga um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks, hefði átt að koma fyrst í þessu frumvarpi um breytingu á lögum. Mér finnst að það hefði átt að koma fram frumvarp til breytingar líka á 1. gr. áfengislaganna.
Hún hljóðar svona:
„Tilgangur laga þessara er að vinna gegn misnotkun áfengis.“
Þegar verið er að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum sem hafa þessa grein fyrir markmiðsgrein hljóta menn að stinga eitthvað á því. Frumvarpið sem er hér til umfjöllunar stuðlar í raun að aukinni neyslu áfengis. Það er bara staðreynd sem margar rannsóknir hafa sýnt fram á að því auknara sem aðgengi er að áfengi því meiri verður neyslan. Áfengislögin eru til þess að koma í veg fyrir og hindra aðgang að áfengi. Hvers vegna?
Það eru tæp 100 ár síðan samþykkt voru lög á Alþingi um aðflutningsbann á áfengi. Til fróðleiks langar mig til að lesa 1. gr. áfengislaga sem voru samþykkt á Alþingi Íslendinga árið 1909:
„Engan áfengan drykk má flytja til Íslands til annara nota en þeirra, sem getið er um 2. í grein, og farið sje með eftir reglum þeim, sem settar eru í lögum þessum. En það er áfengur drykkur eftir lögum þessum, sem í er meira en 2¼% af vínanda (alkóhóli) að rúmmáli.“
Þarna er í raun og veru 1. gr. laga um aðflutningsbann á áfengi. Það var samkomulag um það að undanfarinni þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir 100 árum að banna áfengisneyslu í landinu. Þetta finnst náttúrlega mörgum undarlegt í dag miðað við þann tíðaranda sem við búum við. Það er hægt að rekja lengi sögu þess hvernig þetta breyttist svo allt saman, hvernig Spánarvínin komu inn í og hvernig látið var undan.
Það sem ég er að vekja athygli á er það hvers vegna ein þjóð ákveður að alkóhól skuli ekki vera neysluvara í landi hennar. Er það vegna þess að allir eru svo þröngsýnir og á móti öllu, skilja ekki nútímann o.s.frv.? Hvaða böl og þjáning er ekki á bak við þessa ákvörðun sem þjóðin tók? Við sjáum það í dag ef við horfum til þeirra sjúkrahúsa og meðferðarstöðva sem taka áfengissjúklinga inn til sín, þær eru meira og minna alltaf fullar vegna þess að áfengisneyslan er svo mikil í landinu.
Áfengisneysla hefur stóraukist. Á síðustu 10 eða 15 árum hefur hún aukist um 5–7 lítra á mann í hreinum vínanda. Vínandi er efni sem vinnur á móti líkamanum, hættulegt efni. Það hefur náttúrlega áhrif á heilann og það veldur unaði, mörgum finnst unaður að finna þegar vínið hríslast um líkamann. Þegar menn ganga að barnum þar sem áfengið er, allar flöskurnar og ljóminn ganga þar margir að og finna ákveðinn kraft og mátt þegar þeir ganga til fundar við Bakkus. Það er þannig, þess vegna sækja menn aftur og aftur í vínið. Við þessu hefur verið varað um aldir.
Í þessu sambandi langar mig til að lesa, með leyfi hæstv. forseta, úr orðskviðum Salómons konungs þar sem stendur:
„Hver æjar? hver veinar?
hver á í deilum? hver kvartar?
hver fær sár að þarflausu? hver rauð augu?
Þeir sem sitja við vín fram á nætur,
þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.
Horf þú ekki á vínið, hve rautt það er, hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.
Að síðustu bítur það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra.
Augu þín munu sjá kynlega hluti, og hjarta þitt mun mæla fláræði.
Og þú munt vera eins og sá, sem liggur úti í miðju hafi,
já, eins og sá, er liggur efst uppi á siglutré.“
Svo segir hann, vínsvelgurinn:
„Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til,
þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var.
Hvenær mun ég vakna?“
Síðan endar það með þessum orðum:
„Ég vil meira vín.“
Sem sagt, það skiptir engu máli í hvaða vandræðum ég hef lent. Það skiptir engu máli hvað yfir mig hefur gengið, ég hef misst fjölskylduna mína og lent í alls konar ógöngum vegna áfengisneyslu en ég ætla bara að halda áfram.
Það er það sem alkóhólið gerir og þannig virkar alkóhólið á mjög marga eins og dæmin sanna, eins og við sjáum þegar við sjáum allan þann fjölda sem fer inn á Vog og Vík og Staðarfell, hjá SÁÁ og því góða fólki sem þar er, og þá sem leita hjálpar í Hlaðgerðarkoti og hjá Krýsuvíkursamtökunum og fleirum sem gefa sig að þessum málum, t.d. Foreldrahúsinu líka.
Það er hægt að tala hér lengi um mjög alvarlegar afleiðingar áfengisdrykkju og sýna fram á með endalausum dæmum hvað áfengi hefur skapað mikið böl hjá mörgum einstaklingum og mörgum fjölskyldum. Það eru t.d. á þessu augnabliki, herra forseti, mörg börn sem hafa áhyggjur af því hvort pabbi eða mamma verða drukkin um helgina eða kannski bara í kvöld. Eitt af því sem gæti ráðið úrslitum um það er hvort bjór sé aðgengilegur. Það er talað voða mikið um léttvín í þessari umræðu hérna en það er líka verið að selja bjór. Og hvað á að segja? Bjórinn sem er við hliðina á kókflöskunni eða mjólkinni í markaðnum, eða rauðvínið þegar það er til staðar, eykur hættuna á því að sá sem glímir við áfengisvandamál kaupi þetta í staðinn fyrir ef það er selt á öðrum stað eins og það er í dag.
Að setja þetta upp sem eitthvert meiri háttar vandamál, forseti, skil ég ekki. Það er eins og þjóðin sé í einhverri gríðarlegri þjáningu og erfiðleikum og öng út af því að vín skuli ekki vera selt úti í búð. Hvað er að? Hvað er málið? Geta menn ekki bara keypt sitt vín í Ríkinu eins og verið hefur? Ég veit ekki betur en að Ríkið sé sífellt að auka þjónustu sína á þessu sviði sem mér finnst að það ætti að reyna að draga úr. Ég er einn af þeim mönnum sem mundu ekkert harma það þó að aðgengi að alkóhóli minnkaði.
Svo er eitt annað í þessu sem ekki hefur verið minnst á í þessu sambandi, frú forseti, tengsl þessa vímuefnis sem alkóhól er við önnur vímuefni. Auðvitað er þetta sami heimurinn. Það er sami andinn. Þetta er sama glasið ef svo má að orði komast, já, sama andaglasið. Það er að hverfa frá edrúástandi yfir í ástand vímunnar. Af hverju drekka menn bjór frekar en appelsín? Er það út af bragðinu? Ég held að það sé út af alkólhólinu sem er í bjórnum, hæstv. forseti. Af hverju velja menn að drekka rauðvín með mat frekar en vatn? Er það af því að rauðvínið kallar fram eitthvert sérstakt bragð af matnum, eða hvað?
Ég verð að segja, frú forseti, að ég vona að Alþingi Íslendinga taki þetta mál ekki til endanlegrar afgreiðslu nema þá bara til að fella það. Það væri best. Svo á að vísa þessu til allsherjarnefndar. Það hefur verið minnst á það. Eins og hv. þm. Þuríður Backman talaði um áðan væri ekkert óeðlilegt að frumvarpinu væri vísað til heilbrigðisnefndarinnar. Það væri mjög eðlilegt og að það færi jafnvel til fleiri nefnda til umfjöllunar. Við erum að tala um svið sem er ekki eins einfalt og það að selja baunir eða nagla. Áfengi er efni allt annarrar veru en saltfiskur eða grænmeti. Við eigum ekki að tala eins og þetta sé bara hver annar matur. Það er ekki þannig. Þess vegna erum við með áfengislög. Það hefur ekkert breyst.
Ég ítreka þau ummæli mín frá því áðan, ég er mjög hissa á að flutningsmenn hafi ekki komið með breytingartillögu við 1. gr. áfengislaga sem, eins og ég sagði áðan, hljóðar svona:
„Tilgangur laga þessara er að vinna gegn misnotkun áfengis.“
Það gerum við ekki með því að fjölga útsölustöðum áfengis. Það er bara alveg fáránlegt að láta sér detta það í hug. Þá verða menn að koma með breytingartillögu við 1. gr. líka.
Ég vil líka víkja að öðru sem var vikið að hér áðan, þ.e. hversu mjög áfengisvandi eldri borgara hefur vaxið. Það sýna tölur frá SÁÁ, að því fólki fjölgar sem er eldra þegar það kemur til meðferðar. Það er fólk sem er búið að vera í bjór og léttvínum af því að það er að skapa þann anda og þá stemningu að léttvín og bjór séu svolítið öðruvísi en vodki eða brennivín.
Frú forseti. Ég minni á að þokkalegur sterkur bjór, eða réttara sagt kannski óþokkalegur sterkur bjór, er jafnsterkur að áfengismagni og tvöfaldur asni sem menn ættu náttúrlega að drekka sem minnst af því að þá verða þeir síður asnar. Það gleymist oft að tala um þetta. Það sem hefur áhrif á fólkið er efnið alkóhól. Alkóhól er í léttum vínum og alkóhól er í bjór. Ef menn eru með tiltölulega sterkan bjór, mér skilst að styrkleikinn sé misjafn, og drekka hann finna þeir breytingu á sér.
Þess vegna tel ég, herra forseti, að það eigi að beita öllum ráðum til að framfylgja 1. gr. laga um áfengislög sem eru um að vinna gegn misnotkun áfengis. Það gerum við með því að hafa ekki áfengi í hverri einustu verslun landsins eða svo gott sem. Það gerum við ekki með því að lækka áfengiskaupaaldurinn og það gerum við ekki með því að lækka verð á áfengi. Þess vegna mun ég berjast gegn því að þetta mál fari í gegn sem hér er borið upp.