sala áfengis og tóbaks.
Mig langar til að svara hv. þm. Sigurði Kára Kristjánssyni með þeim orðum að ég mundi náttúrlega ekki harma það þótt áfengi væri ekki selt á Íslandi. Það væri ekki minn harmur. Hins vegar mundi ég aldrei ganga svo langt að krefjast þess að það yrði bannað.
Í sumum löndum fer fram umræða um hvort leyfa eigi fíkniefni eða ekki. Sums staðar hafa menn farið þá leið að leyfa neyslu annarra fíkniefna en alkóhóls, en ég lít svo á að alkóhól sé fíkniefni. Það vekur fíkn hjá fólki alveg eins og kókaín og amfetamín, en margir telja að neysla þeirra efna sé mikið meiri en við gerum okkur grein fyrir, jafnvel hjá mjög ungu fólki og líka hjá þeim eldri.
Ég ætla ekki að halda því fram hér að ég vilji — svo ég setji þetta fram á jákvæðan hátt — leyfa áfengisbann í landinu. Ég ætla kannski ekki að halda því fram en ég er á þeirri skoðun, hv. þingmaður, að því greiðari sem aðgangur er að alkóhóli því meiri verði neyslan. Það hafa margar rannsóknir sýnt. Því meiri sem neysla alkóhóls er og því víðar sem þess er neytt þá náttúrlega komast yngri aldursflokkar í þetta og eru drukknir. Það slævir dómgreindina og getur leitt til þess að fólk, t.d. í svona partíum í skólum og öðru, fari út í fíkniefnaneyslu.