135. löggjafarþing — 10. fundur,  16. okt. 2007.

sala áfengis og tóbaks.

6. mál
[16:45]
Hlusta

Árni Johnsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég sagði aldrei í ræðu minni að ég vildi hækka áfengiskaupaaldur. (Gripið fram í.) Nei, nei, ég sagði það ekki. Ég vitnaði í það sem er sjónarmið margra sem eru að berjast við vandamál tengd víni á Íslandi að þeir teldu að hátt verð, takmarkað aðgengi, hár innkaupaaldur og auglýsingabann væri best fallið til árangurs gegn vánni. Það er allt annað að upplýsa það en hv. þm. Pétur Blöndal klínir engum skoðunum á mig, hann getur átt þær sjálfur í sínu höfði.

Ég endurtek að sú áhersla sem ég stend fyrir í þessu er að verja ungt fólk á Íslandi.