sala áfengis og tóbaks.
Frú forseti. Það er einmitt það sem hv. þingmaður sagði, ábyrgð og frelsi fara saman. Ef við bönnum einhverja hluti vex ásóknin í þá. Ef hv. þingmaður gengur fram hjá kökunum þarf hann sjálfur að taka ákvörðun um hvort hann ætlar að borða meira og verða feitur eða gera það ekki. Það er hans eigin ákvörðun, það er enginn sem segir honum að hann eigi að borða kökurnar eða að hann eigi að sleppa því. Það sem ég er að segja er: Það fer saman frelsi og ábyrgð. Ef maður tekur frelsið af manninum tekur maður um leið af honum ábyrgðina. Þá fer hann að sækja í viðkomandi vöru.
Ég vil endurtaka að þetta frumvarp gengur eingöngu út á það að það eru ekki lengur opinberir starfsmenn sem eiga að afgreiða áfengi, þ.e. léttvín og bjór. Meira að segja hefur ÁTVR verið að auka aðgengið, bæta þjónustuna, og menn hafa jafnvel ekki mótmælt því sem eru á móti auknu aðgengi. Þetta er því eiginlega bara spurningin um það hvort það séu opinberir starfsmenn sem veita gott aðgengi að vörunni eða einkaaðilar.