135. löggjafarþing — 10. fundur,  16. okt. 2007.

sala áfengis og tóbaks.

6. mál
[17:44]
Hlusta

Kjartan Ólafsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir þessa ábendingu. Mér finnst þetta vera ákveðinn nýr vinkill í þessari umræðu og spyr hv. þingmann hvort hann sé tilbúinn að beita sér fyrir þessu. Ef framboðið verður það sama og nú er á landsbyggðinni með tilliti til sterku drykkjanna, finnst mér öðru máli gegna um þetta frumvarp en það í raun hefur verið kynnt hér. Mér fannst mjög athyglisvert að heyra þetta og vil fá að heyra hvað þingmaðurinn segir um framgang frumvarpsins hvað þetta varðar.