135. löggjafarþing — 10. fundur,  16. okt. 2007.

sala áfengis og tóbaks.

6. mál
[17:45]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég get alveg hugsað mér að styðja slíka breytingartillögu, hvort sem hún kæmi frá þeirri nefnd sem um þetta fjallar eða frá einstökum þingmönnum. Hv. þm. gæti þá flutt breytingartillögu einmitt í þessa veru.