135. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2007.

þsamstarf við Norðmenn og Dani á sviði öryggismála.

104. mál
[13:35]
Hlusta

utanríkisráðherra (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir hefur lagt fram fyrirspurn til mín sem er í tveimur liðum. Fyrri liðurinn er svohljóðandi:

„1. Er hafin samvinna við Norðmenn og Dani á grundvelli rammasamkomulags og yfirlýsingar frá 26. apríl sl. um samstarf á sviði öryggismála, varnarmála, viðbúnaðar, leitar og björgunar?“

Við þessu er það svar að samvinna við Norðmenn og Dani á grundvelli þessa rammasamkomulags og yfirlýsingar frá 26. apríl sl. um samstarf á sviði öryggismála, varnarmála, viðbúnaðar, leitar og björgunar er þegar hafin. Sjálf átti ég fund með varnarmálaráðherra Noregs í ferð minni þangað í júní sl. þar sem þetta var m.a. til umræðu og embættismenn utanríkis- og dómsmálaráðuneyta hafa verið í sambandi við embættismenn í systurráðuneytum sínum í báðum löndum, þ.e. Danmörku og Noregi.

Fyrsti formlegi fundur embættismanna Íslands og Noregs á grundvelli rammasamkomulagsins var haldinn 1. október sl. og fyrirhugaður er fundur á grundvelli yfirlýsingarinnar með dönskum embættismönnum þann 5. nóvember nk. Ég hef reyndar þegar sent utanríkismálanefnd minnisblað um þetta mál þannig að frekari upplýsingar um þetta samstarf og þær viðræður sem áttu sér stað þann 1. október sl. eiga að liggja fyrir hjá fulltrúum í utanríkismálanefnd.

„2. Er unnið að nánari skilgreiningu á því hvað í rammasamkomulaginu og yfirlýsingunni getur falist?“

Því er til að svara að unnið er að nánari skilgreiningu á þessu innan bæði ráðuneyta utanríkis og dómsmála sem verða eðli málsins samkvæmt að hafa um þetta náið samstarf því að þetta samkomulag tekur til varnar- og öryggismála og björgunarmála. Þar að auki koma að þessu máli viðeigandi undirstofnanir þessara ráðuneyta.

Enn fremur er unnið að skilgreiningu samráðsferla og boðleiða milli ráðuneyta annars vegar og undirstofnana hins vegar. Gert er ráð fyrir því að framkvæmd þessi skýrist frekar á næstu mánuðum.

Þingmaðurinn spurði áðan að því hver skoðun mín væri á samstarfi milli Landhelgisgæslu á Norðurhöfum, norsku, dönsku, íslensku og jafnvel kanadísku, en dómsmálaráðherra Björn Bjarnason hefur hugmyndir um einhvers konar formlegt samstarf milli landhelgisgæslu þessara strandríkja á Norðurhöfum. Ég held að það sé í sjálfu sér ágætt og gott að sem mest samstarf sé á milli þessara aðila. Eins og kom fram í máli þingmannsins er alveg ljóst að skipaumferð um norðurslóðir mun aukast verulega á komandi árum. Við munum sjá mikinn fjölda af stórum skipum koma jafnvel úr Barentshafinu með olíu og gas og það er mikilvægt að samræmi sé á milli allra þeirra aðila sem hagsmuna eiga að gæta um það hvernig staðið verði að björgun og aðgerðum ef til einhverra slysa kemur á þessari siglingaleið.

Það er alveg rétt hjá þingmanninum að það er dálítið mismunandi með landhelgisgæslur ríkja hvort þær heyra undir borgaraleg yfirvöld eða hernaðarleg og það getur vel verið að það þurfi að skoða og skilgreina frekar hvernig þessu samstarfi verður háttað. Landhelgisgæsla okkar er náttúrlega borgaraleg starfsemi en ég geri ráð fyrir því að með það verði unnið þegar þar að kemur. Þetta er enn á hugmyndastigi eins og kom fram í máli dómsmálaráðherra.