135. löggjafarþing — 12. fundur,  18. okt. 2007.

tilkynning um dagskrá.

[10:34]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill geta þess að um kl. 13.30, að loknu hádegishléi, fer fram utandagskrárumræða um stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum. Málshefjandi er hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir. Hæstv. umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.