135. löggjafarþing — 12. fundur,  18. okt. 2007.

eignarhlutur ríkisins í Landsvirkjun.

[10:38]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég tel mikilvægt að á Alþingi fari fram umræða um framtíð orkugeirans á Íslandi, orkuauðlinda og þeirra fyrirtækja sem stýra þeim. Iðulega verður þar ekki skilið á milli. Orkufyrirtækin eru umsjáraðilar orkuauðlinda.

Ég bendi á að fyrir þinginu liggur beiðni um utandagskrárumræðu af hálfu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um nákvæmlega þetta efni. Ég hefði óskað eftir því að þessi umræða færi fram í þessari viku en þar sem Vinstri hreyfingin – grænt framboð er með annað umfjöllunarefni í umræðu utan dagskrár síðar í dag þótti ekki rétt að gera það til að gæta jafnræðis milli flokkanna. En beiðni um utandagskrárumræðu um þetta efni, um framtíð orkugeirans, orkuauðlindanna og þeirra fyrirtækja sem sýsla með þær, liggur fyrir þinginu. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því.