135. löggjafarþing — 12. fundur,  18. okt. 2007.

eignarhlutur ríkisins í Landsvirkjun.

[10:52]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf):

Virðulegi forseti. Um þessa umræðu má segja að hún hafi haft nokkurt upplýsingagildi en einnig skemmtanagildi. Þar hafa framsóknarmenn verið fremstir í flokki. Það var mjög gott að fá skýrt svar frá hæstv. forsætisráðherra um það að ekki stendur til að einkavæða Landsvirkjun. Á sama hátt þótti mér ræða formanns Framsóknarflokksins bráðskemmtileg. Þannig að hvort tveggja má segja að umræðan hafi bæði haft upplýsingagildi og skemmtanagildi.

En til upprifjunar, og til þess að maður átti sig nú á því hvort það sé ekki rétti Framsóknarflokkurinn sem hér er á ferðinni, minnti hv. þm. Grétar Mar Jónsson á að auðlindir sjávar hafi verið einkavæddar fyrir margt löngu. Auðlindir í jörðu, nánast til heljar og til baka, voru einkavæddar árið 1998 af forustu Framsóknarflokksins og síðan átti að einkavæða vatnsréttindin fyrir ári eða svo.

Er það ekki sami Framsóknarflokkurinn sem þá var að verki og sá sem kemur nú og segir að tryggja verði að allar auðlindir skuli vera í almannaeigu? Er nokkur misskilningur hér á ferðinni? Er þetta ekki sami Framsóknarflokkurinn og sá sem háeffvæddi Hitaveitu Suðurnesja? Er þetta ekki sami flokkurinn og sá sem stóð að háeffvæðingu ýmissa annarra fyrirtækja? (Gripið fram í.) Er þetta ekki sami Framsóknarflokkurinn?

Það eru, ef ég man rétt, (Forseti hringir.) sex mánuðir frá kosningum. Þetta hlýtur að vera einhvers konar tilraun til heimsmets í endurnýjunarhæfileikum.