raforkulög.
Hæstv. forseti. Ég fagna þessu frumvarpi. Mér finnst það mjög af hinu góða. Ég vil nefna sérstaklega eitt atriði, þ.e. breytinguna á 31. gr. Það er afar ánægjulegt að sjá lagða til lækkun á þessu eftirlitsgjaldi sem innheimt er til að standa undir eftirlitshlutverki Orkustofnunar. Það er ekki svo oft sem maður sér menn leggja til lækkanir á gjöldum og það er sérstaklega gleðilegt.
Það er ljóst að þessi lækkun kemur til, eins og hæstv. iðnaðarráðherra sagði, vegna aukinnar raforkuframleiðslu. Mig langar af því tilefni til þess að spyrja hæstv. iðnaðarráðherra að því hvort ekki megi, vegna þess að við sjáum fram á enn meiri aukningu í rafmagnsframleiðslu á næstunni, hvort ekki verði að líta svo til að þetta gjald muni lækka jafnvel frekar eða hvort nauðsynlegt sé að endurskoða gjaldið með þessum hætti árvisst.