135. löggjafarþing — 12. fundur,  18. okt. 2007.

raforkulög.

129. mál
[12:06]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður þekkir mig vel og hugsanlega minn innri mann betur en margir aðrir. Ég virði hv. þingmann fyrir margt sem hún hefur gert vel og margsinnis á mínum skammvinna ferli sem iðnaðarráðherra hef ég hrósað henni fyrir frumkvæði hennar að ýmsu sem varðar nýsköpun og iðnað. Það hefur því ekkert skort á að ég hafi borið lof á hana fyrir það sem hv. þingmaður verðskuldar. Þegar menn hins vegar koma að mér með einhvers konar tuði og naggi þá svara ég í sömu mynt. Það hefur alltaf verið mín regla og verður það áfram, svo ég aðvari hv. þingmann um það.

Ég hef ekki áhuga á að ræða við hana öðruvísi en málefnalega um þetta mál og það gleður mig að hún tekur undir að þarna kunni að vera framtíðargrein sem skiptir máli, þ.e. netþjónabúin. Ég dreg það ekkert í efa að hv. þingmaður hafi jafnmikinn áhuga og ég á því að reyna að koma einhvers konar starfsemi af þessum toga fyrir úti á landi.

Hv. þingmaður spyr svo hvort dreifikerfið og flutningskerfið sé búið undir slíkt. Það ætti hv. þingmaður sennilega að vita miklu betur en ég, hún hefur borið ábyrgðina á því að byggja það upp á síðustu árum. Hins vegar liggur fyrir að núverandi ríkisstjórn hefur sagt að markmið hennar sé að gera landið allt að einu atvinnu- og búsetusvæði. Það er háleitt markmið sem ég er alveg viss um að næst ekki á þessu kjörtímabili, einu kjörtímabili, en í því felst skuldbinding um að íbúar landsins alls eiga að njóta jafnræðis um samgöngur, um fjarskipti og líka um raforkudreifingu. Það hef ég margoft sagt. Og þá verður ríkisvaldið einfaldlega að sjá til þess að dreifikerfið sé undir þetta búið.

Mjög líklegt er að hér festi rætur stór netþjónabú af þessari nýjustu kynslóð á næstu árum. Þetta frumvarp miðar hins vegar að því að reyna að skapa umhverfi sem laðar smærri gerðir gagnamiðstöðva út á landsbyggðina. Ef ekki er hægt að ná þessari breytingu í gegn, þá (Forseti hringir.) útilokar það þau vegna þess að þá verður dreifikostnaðurinn fimmfaldur. Það er svo einfalt, það bara slær þau út af borðinu.