135. löggjafarþing — 12. fundur,  18. okt. 2007.

raforkulög.

129. mál
[12:30]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég er upp með mér af þeirri miklu trú sem hv. þingmenn Vinstri grænna hafa á mér og minni getu og mun reyna að bregðast þeim ekki. Að því er varðar síðari part ræðu hv. þingmanns var ég búinn að svara því í andsvari við hv. þm. Ögmund Jónasson að ég mun ekki liggja á liði mínu til að koma að verki ef menn vilja skoða möguleika á þessu. Þær upplýsingar og atgervi sem iðnaðarráðuneytið hefur í þeim efnum er ég reiðubúinn til að láta í té. Ég hef afstöðu í málinu, hún hefur margoft komið hér fram.

Ég hef ekki skoðað það nákvæmlega með hvaða hætti t.d. ylræktendur, jafnvel þótt þeir sameinuðust, gætu komið að þessu, það er sjálfsagt að skoða það. En ég ítreka að nefndinni eru ekki þær hömlur settar sem mér eru settar við það að fara inn á verksvið annarra ráðuneyta. Nefndin getur skoðað hvaðeina.

Að því er varðar orku, ál og gagnamiðstöðvar, þá hef ég þetta að segja: Ég hef enga fordóma gagnvart því að framleiða orku í landinu ef það er gert með eins umhverfisvænum hætti og kostur er og ef það stenst öll lög og reglur. Ég hef t.d. enga fordóma gagnvart stóriðju fremur en hv. þm. Árni Þór Sigurðsson. Hann hefur það ekki heldur. Ég á ákaflega margar skemmtilegar tilvitnanir og fróðlegar í hann sem benda til þess að við séum ekki í neinum grundvallaratriðum andstæðrar skoðunar í þeim málum.

Það sem mér finnst skipta máli varðandi netþjónabúin, ef þau væru viðbót við atvinnulífið, er í fyrsta lagi að þau nota töluvert af orku og þau menga nánast ekki neitt. Þetta er hátækniiðnaður og reynslan sýnir að oft skapast klasar hátæknivinnslu í kringum þessi netþjónabú. Þetta er starfsemi sem gæti gert íslenskt atvinnulíf miklu fjölbreyttara en áður og miklu minna háð einni tegund stóriðju. Ég neita því ekkert af því að ég er bara ærlegur í þessari umræðu. Það er eitt af því sem vakir fyrir mér.