135. löggjafarþing — 12. fundur,  18. okt. 2007.

ræðufjöldi í umræðum.

[12:38]
Hlusta

Forseti (Einar Már Sigurðarson):

Forseti vill taka fram vegna orða hv. þingmanns að hér er um venju að ræða sem hefur verið um árabil og forsetar hafa sammælst um að fylgja. En vegna orða hv. þingmanns mun forseti taka þetta mál upp í forsætisnefnd. (ÖJ: Ég hef aldrei sammælst um þessa hefð.) Því var ekki haldið fram að hv. þingmenn hefðu gert það heldur að forsetar hefðu gert það. Vegna orða hv. þingmanns mun ég taka málið upp að nýju í forsætisnefnd.