135. löggjafarþing — 12. fundur,  18. okt. 2007.

tilfærsla verkefna innan Stjórnarráðs Íslands.

130. mál
[13:24]
Hlusta

Guðni Ágústsson (F) (um fundarstjórn):

Ég skal viðurkenna það, hæstv. forseti, að á mínum langa þingferli hef ég aldrei heyrt svo langa ræðu um þann sem var að halda ræðu og hvað hann hafi farið út af leiðinni. Ég þori að fullyrða að miðað við þær hefðir sem hér hafa að myndast hefði enginn áttað sig á því nema hæstv. forseti. Ég þori að fara yfir mína ræðu, í meginatriðum var hún rökrétt út frá þeim hefðum og þeim lögum sem hér gilda.

Þess vegna þýðir ekki að tala um milda leið. Það getur vel verið að það sé mild leið þegar forsætisnefnd talar um það á fundum sínum sem er eðlilegt. (Gripið fram í: Hver er líklegur?)

Hér eiga menn að tala mannamál. Hér eiga menn að fá frelsi til að skoðanir þeirra komi fram. Við verðum auðvitað að skiljast við ákveðið form. Ég er tilbúinn að fara á námskeið í þeim efnum, en ég hygg að þá verði æðimargir að fylgja mér á námskeiðið. Ég hygg að það geti líka vafist fyrir mönnum að finna þann sem getur haldið námskeiðið því að kannski kann enginn þessi þingsköp og þessar hefðir og þessar þéringar: hæstvirtur, háttvirtur, vísa máli til forseta. Ég heyri á þjóðinni að henni finnst þetta oft stagl sem skemmir ræðuna.

En ég vil fara að hefðum þingsins og taldi mig gera það í þessari ræðu. Þar sem ég vitnaði í annað mál sem var Bjarni Benediktsson bað ég sérstaklega um leyfi til þess.