135. löggjafarþing — 13. fundur,  18. okt. 2007.

sala áfengis og tóbaks.

6. mál
[18:35]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fæ ekki annað heyrt en við leggjum okkur öll fram við að ræða málin af yfirvegun og skynsemi og skoða þau í víðu samhengi. Hins vegar hefur mér þótt nokkuð skorta á það af hálfu flutningsmanna sem hafa einblínt á að nauðsynlegt sé að koma áfengi í almennar matvöruverslanir án þess að taka tillit til afleiðinganna.

Á meðal okkar sem höfum talað gegn frumvarpinu eru mismunandi áherslur, bæði hvað varðar verðlagningu á áfengi og hve langt menn vilja ganga fram í að takmarka aðgengi. Ég fyrir mitt leyti horfi á það sem staðreynd að áfengisneysla er við lýði í landinu. Ég er ekki með tillögur um að banna hana, alls ekki. Ég hef talað fyrir því á þingi að byggðarlögum verði ekki mismunað í aðgengi að verslunum ÁTVR. Ég hef flutt þingmál um að sú aðstaða verði bætt.

En þá vaknar hin spurningin, sem lýtur að aðgenginu og hve ágeng verslunin er gagnvart neytandanum. Þar vil ég fara varlega og finna milliveg. Ég tel að fyrirkomulagið sem við höfum fundið sé þessi millivegur. Fyrir mitt leyti hefur mér fundist ÁTVR ganga stundum ívið of langt í auglýsingamennsku. Ég hef gagnrýnt það. Ég hef gagnrýnt það opinberlega og ég hef gagnrýnt stjórn ÁTVR beint. Mér finnst ÁTVR ekki alltaf rísa undir skyldum sínum hvað þetta snertir. Ég vil hafa gott vöruúrval og tryggja að við getum keypt þessa vöru á hagstæðu verði inn til landsins. En ég vil hins vegar síðan setja sölumönnum ákveðnar skorður (Forseti hringir.) hvað varðar ágengni við notandann.