135. löggjafarþing — 13. fundur,  18. okt. 2007.

sala áfengis og tóbaks.

6. mál
[18:57]
Hlusta

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get fullvissað hv. þm. Atla Gíslason um það að ég hef skilning á vandamáli eins og hann kallar, sem ég geri ráð fyrir að hann eigi við að sé áfengisvandamál einstaklinga vítt og breitt um landið. Ég hef skilning á því, ég þekki það vandamál og ég hef sagt það áður hér úr ræðustóli að ég held að vandamálið hefði verið hvort heldur, og það var og er á meðan einkasala áfengis er hjá ÁTVR. Það er einfaldlega skoðun mín að einkasölunni eigi að aflétta en það er ekki þar með sagt að maður skilji ekki vandamál áfengissjúklinga eða fíkniefnavandann almennt. Því fer víðs fjarri. En ég set þetta bara ekki á sama stall. Ég hef verið talsmanneskja þess frá upphafi, frá stofnun SÁÁ og tók þátt í þeirri stofnun, að það sé brýn þörf og hefur verið og verður, því miður, á því að veita þá þjónustu hvort heldur hjá þeirri stofnun eða heilbrigðisstofnunum almennt. Ég dreg ekki dul á það að vandamálið er mikið en ég get bara ekki sett það í samband við það að einhverjum öðrum verði heimilt að selja þessa vöru. Mér finnst það ekki fara saman að segja að um leið og annar aðili fær að selja áfengi þýði það aukið vandamál.