135. löggjafarþing — 13. fundur,  18. okt. 2007.

tekjuskattur.

15. mál
[19:21]
Hlusta

Flm. (Kristinn H. Gunnarsson) (Fl):

Virðulegur forseti. Ég vil mæla hér fyrir 15. máli á þskj. 15, frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, sem ég flyt ásamt öðrum þingmönnum Frjálslynda flokksins, hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni, Grétari Mar Jónssyni og Jóni Magnússyni.

Málið gengur út á að lagt er til að inn í tekjuskattslögin verði bætt ákvæði um sérstakan persónuafslátt til viðbótar hinum almenna persónuafslætti sem lögin hafa að geyma og hv. þingmenn þekkja. Sérstakur persónuafsláttur verði svo hár á hverju ári að hann dugi til þess að einstaklingur með tekjuskattsstofn að 1,8 millj. kr. á ári eða 150 þús. kr. á mánuði verði skattlaus og greiði hvorki tekjuskatt né útsvar. Við gerum ráð fyrir því að þessi sérstaki tekjuskattur hreyfist eftir vaxandi tekjum og lækki þar til tekjur hafi náð 3 millj. kr. eða 250 þús. kr. á mánuði. Þá er hann fallinn niður.

Þetta þýðir tvennt, virðulegi forseti. Í fyrsta lagi mun skattbyrði þeirra sem fá 150 þús. kr. á mánuði og minna verða núll. Sá hópur mun fá verulega kjarabót frá því sem nú er. Í öðru lagi mun þessi breyting þýða að sá hópur framteljenda sem er með tekjur á bilinu 150 þúsund upp í 250 þúsund á mánuði mun fá viðbótarpersónuafslátt og skattar þeirra lækka frá því sem nú er. Frumvarpið mun hins vegar ekki hafa áhrif á skattbyrði þeirra sem hafa meira en 3 milljónir í árstekjur. Frjálslyndi flokkurinn bar fram þá stefnu fyrir síðustu alþingiskosningar að hækka almenna hluta persónuafsláttarins upp í 112 þús. kr. og við munum undirbúa frumvarp um það. Það er langstærsti hlutinn af skattatillögum flokksins fyrir síðustu kosningar og sá kostnaðarsamasti þannig að viljum fara vandlega yfir það mál áður en við leggjum frumvarpið fram og vera viss um að rökstyðja megi með tryggilegum hætti að slíka breytingu væri hægt að gera án skattahækkunar.

Okkur sýnist á væntanlegri útkomu þessa árs fyrir ríkissjóð og á fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár að mat okkar á fjárhagsstöðu ríkissjóðs til næstu ára muni reynast nærri lagi. Það gæti dregið til þess að við mundum flytja frumvarp um almenna hækkun persónuafsláttarins fljótlega á þessu kjörtímabili.

Við völdum þann kostinn að taka út úr lágtekjuhópinn og leggja strax til hækkun skattleysismarka hjá þeim hópi til að bæta kjör hans.

Lagt er til að þetta frumvarp öðlist gildi um áramótin, 1. janúar 2008, þannig að það hefur áhrif strax á næsta ári.

Með frumvarpinu fylgir svohljóðandi greinargerð, virðulegi forseti, með leyfi forseta:

„Með frumvarpi þessu er lagt til að bæta verulega hag lágtekjufólks með því að taka upp sérstakan persónuafslátt sem kemur til viðbótar núverandi persónuafslætti. Tekjur manns að 150 þús. kr. á mánuði verða skattfrjálsar, en skattleysismörk eru nú rétt tæplega 90 þús. kr. á mánuði. Nái frumvarpið fram að ganga munu skattar lækka um 21.400 kr. á hverjum mánuði hjá þeim sem hefur 150 þús. kr. á mánuði í tekjur. Á heilu ári nemur kjarabótin fyrir lágtekjufólk allt að 257 þús. kr.

Skattar munu einnig lækka hjá þeim sem hafa tekjur frá 150 þús. kr. til 250 þús. kr. á mánuði, en við þau tekjumörk fellur sérstaki persónuafslátturinn niður. Gert er ráð fyrir að sérstaka persónuafslættinum verði eins og persónuafslættinum ráðstafað til greiðslu tekjuskatts, útsvars og fjármagnstekjuskatts og falli niður það sem þá er enn óráðstafað. Hins vegar verði sérstaki persónuafslátturinn ekki millifæranlegur til maka.“ — Það er eina frávikið sem við leggjum til frá almennum reglum um persónuafslátt.

„Ráðherra er falið að setja í reglugerð ákvæði um ráðstöfun sérstaka persónuafsláttarins á móti staðgreiðslu á tekjuári samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda þannig að hann nýtist þá strax eins og kostur er, en eðli málsins samkvæmt verður sérstaki persónuafslátturinn ákvarðaður endanlega við álagningu skatta þegar skattframtal liggur fyrir.

Verði frumvarpið að lögum mun það bæta kjör elli- og örorkulífeyrisþega sérstaklega en þeir eru fjölmennir í tekjulægstu hópunum í þjóðfélaginu. Þannig er t.d. talið að nærri þriðjungur aldraðra hafi tekjur lægri en 120 þús. kr. á mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá Landssambandi eldri borgara hefur þróun kaupmáttar ráðstöfunartekna á árunum 1988–2007 hjá ellilífeyrisþega sem ekki býr einn verið fjarri því að halda í við kaupmáttaraukninguna hjá almenningi á sama tíma. Hefur hækkunin hjá ellilífeyrisþeganum verið aðeins tæplega 20% en 60% hjá almenningi.

Afdrifaríkast fyrir lágtekjufólk hefur verið lækkun skattleysismarka á þessum tíma. Skattleysismörkin eru aðeins rétt tæplega 90 þús. kr. á mánuði en væru um 120 þús. kr. ef þau hefðu fylgt verðlagi og nærri 150 þús. kr. nú ef þau hefðu fylgt launavísitölu. Vegna þessarar þróunar hefur skattlagning á lægri tekjur en 150 þús. kr. á mánuði farið vaxandi. Fyrir ellilífeyrisþega sem greiddi ekki skatt af sínum tekjum við upphaf staðgreiðsluskattkerfisins þýðir lækkun skattleysismarkanna síðan þá minnkandi ráðstöfunartekjur eftir skatta og nú er svo komið að af sambærilegum tekjum og voru 1988 fara ein mánaðarlaun í skatta til ríkisins og lífeyrisþeginn er verr staddur sem því nemur.

Þessi þróun kemur skýrt fram þegar skoðuð er skattbyrði einstakra tekjuhópa og framteljendum skipt í tíu jafnstóra hópa. Í lægstu tíund eru 10% tekjulægstu framteljendurnir og þannig koll af kolli. Borin er saman skattbyrðin árin 1994 og 2004 og kemur þá í ljós að skattbyrðin hefur vaxið í öllum tíundarhópunum nema þeim hæsta þar sem hún hefur lækkað. Skattbyrðin hefur hins vegar þyngst mest í lægstu tekjuhópunum, um 14% í lægstu tíundinni og 15,3% í næstlægstu. Meðaltalshækkun skattbyrðarinnar hjá öllum tekjuhópunum er um 4,5% samkvæmt gögnum sem Stefán Ólafsson prófessor hefur látið taka saman.

Í heildina hafa heildarskatttekjur hins opinbera aukist um 10% af landsframleiðslu frá 1995 til 2004, meðal annars með því að skatttekjur af lágum tekjum hafa aukist á tímabilinu.

Fer ekki á milli mála að lækkun skattleysismarka á verulega sök á þessari þróun þar sem saman hefur farið raunlækkun persónuafsláttarins og lækkun tekjuskattsprósentunnar sem léttir sköttum mun meira af háum tekjum en lágum. Afleiðingin verður vaxandi ójöfnuður milli þjóðfélagshópanna sem sést best á þróun svonefnds Gini-stuðuls.

Tilgangur frumvarpsins er að rétta hlut þeirra sem lágar tekjur hafa og gera hann svipaðan og var við upphaf staðgreiðsluskattskerfisins með því að færa skattleysismörkin upp í 150 þús. kr. á mánuði fyrir þá sem hafa þær tekjur og lægri. Á tekjubilinu frá 150 þús. kr. upp í 250 þús. kr. verða einnig hærri skattleysismörk vegna sérstaka persónuafsláttarins og verða þau frá 150 þús. kr. og að 90 þús. kr. á mánuði eins og þau eru nú og fara lækkandi með vaxandi tekjum. Sem dæmi mundi sá sem hefur 2.400.000 kr. í árstekjur eða 200 þús. kr. á mánuði vera með 120 þús. kr. í skattleysismörk í stað 90 þús. kr. nú.“ — Það mundi þýða um 10 þús. kr. lægri skattgreiðslu á mánuði en nú er.

„Frumvarpið mun bæta kjör tuga þúsunda framteljenda ef það nær fram að ganga.“

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og efnahags- og skattanefndar.