135. löggjafarþing — 13. fundur,  18. okt. 2007.

tekjuskattur.

15. mál
[20:23]
Hlusta

Ásta Möller (S) (andsvar):

Þótt hv. þingmaður hafi ekki notað þessi orð „gæluskattgreiðendur Sjálfstæðisflokksins“ vísaði hann samt til þess hóps sem hv. þm. Atli Gíslason talaði um áðan. Þetta eru sömu einstaklingarnir og höfð voru þung orð um áðan, að greiddu ekki til samneyslunnar, greiddu ekki til skólanna, greiddu ekki í samgöngur o.s.frv. Það er ljóst að þarna er ekki um að ræða hóp sem eru miklir bógar, þetta er ekki fólkið sem á að ráðast á og segja að sé að mergsjúga kerfið, öðru nær. Þar er margt ungt fólk, sem er sjálfsagt í skóla og hefur ekki tekjur en hinir, allir hinir skattgreiðendurnir sem líka greiða fjármagnstekjur eru jafnframt að leggja til samneyslunnar. Þeir greiða tekjuskatt til ríkisins og gera það eftir þeim reglum sem fyrir er lagt.

Varðandi önnur atriði hjá hv. þingmanni, hvort þetta séu rök fyrir því hvort fjármagnstekjuskattur eigi að fara til sveitarfélaganna, þá er sú umræða algjörlega óútkljáð. Meira að segja sveitarstjórnarmenn eru ekki sammála um það hvort svo eigi að vera. En rökin sem hér hafa verið færð fram fyrir því að fólk sem greiðir eingöngu fjármagnstekjuskatt eigi að greiða þarna inn ná ekki til þessa, duga ekki til að rökstyðja að þetta fólk eigi að borga til sveitarfélaganna.