tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni um að taka þurfi skattkerfið allt til endurskoðunar eins og ég hef reyndar lagt áherslu á í þessari umræðu.
Varðandi fjölgun skattstofna og þá hugsun að með því að lækka beinu skattana þurfi að hækka óbeinu skattana þá fer það náttúrlega eftir þeirri viðmiðun sem við höfum í þjóðfélaginu. Það er alltaf spurningin um það hvernig við lítum á og hvaða möguleika við teljum vera á því að með því að lækka skattana innheimtist hugsanlega svipaðar tekjur þrátt fyrir lægri skattprósentu. Eins og ég hef ítrekað sagt hér tel ég að það geti átt við og hafi sýnt sig að mörgu leyti, m.a. með fjármagnstekjuskattinn og fyrirtækjaskattinn sem var lækkaður að prósentu til.
Í þjóðfélagi sem býr við velmegun þar sem skatttekjur ríkisins eru langt umfram það sem eytt er þrátt fyrir allt bruðlið og óhófið sem ríkisstjórnarflokkarnir standa fyrir, þrátt fyrir allt bruðlið og óhófið sem skera mætti niður að verulegu leyti á mörgum stöðum, m.a. gæluverkefni í utanríkisþjónustu og fleira, þrátt fyrir að ríkissjóður bólgni vegna þenslu, geta sjálfstæðismenn samt ekki til þess hugsað að þeir sem verst eru settir í þjóðfélaginu megi njóta einhverra ávaxta af því, að lækka megi skattana á þeim sem búa við lökust kjörin. Þetta er meginatriðið í því sem við frjálslynd erum að leggja til með þessu frumvarpi.