135. löggjafarþing — 13. fundur,  18. okt. 2007.

tekjuskattur.

15. mál
[20:46]
Hlusta

Jón Magnússon (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er hárrétt athugað að ef skattprósentan er núll þá innheimtast ekki verulegir skattar. En það er nú þannig að í sögunni höfum við ýmsar tilraunir sem menn hafa gert í sambandi við skattheimtu. Það var einu sinni til stjórnmálaflokkur sem hét Sósíalkreditflokkurinn. Mig minnir að hann hafi verið í Nýfundnalandi. Það getur verið að mér skjöplist eitthvað. Hugmyndafræði þess flokks var sú að með aukinni veltu í þjóðfélaginu og að hafa neysluskatta ykjust tekjurnar og til þess að auka veltuna ætti að láta ríkistekjurnar út til borgaranna. Þetta dugði nú ekki langt og reyndist ekki góð hugmyndafræði. Ég er ekki að fara fram á það eða tala um að menn fari nær núllinu þó að margir, sérstaklega námsmenn, beri ógnvænlega virðingu fyrir þeirri tölu.

Skattkerfið þarf að taka til endurskoðunar og þetta er alltaf spurningin um hversu langt við getum farið. En við frjálslyndir erum ekkert að leggja það til með þessu frumvarpi. Við erum eingöngu að leggja til að fólk sem hefur ekki nægjanlegar tekjur sér til framfærslu eða er alveg á mörkun fái að njóta þeirra tekna án þess að skattmaðurinn sé á eftir þeim, að hönd ríkisins komi og taki hluta af því sem gerir það að verkum að fólk getur ekki og býr ekki við eðlileg lífskjör í landinu. Þetta er lágmarkskrafa. Við förum eins varlega og hægt er að hugsa sér og ekkert minna kemur til greina sem fyrsta skrefið að okkar mati.