135. löggjafarþing — 13. fundur,  18. okt. 2007.

efling kennslu í heilbrigðisvísindum í Háskólanum á Akureyri.

117. mál
[21:57]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Ég kem upp stuttlega, svipað og aðrir sem tekið hafa til máls í þessari umræðu, til að lýsa því að ég tel að hér sé um prýðilega tillögu að ræða og styð hana. Hér er auðvitað hreyft mikilvægu máli sem lýtur að því að efla heilbrigðisvísindin við Háskólann á Akureyri. Ég held að það dyljist engum sem til þekkja og jafnvel okkur sem komum hér af suðvesturhorninu að Háskólinn á Akureyri hefur orðið mjög mikil lyftistöng fyrir samfélagið á því svæði, ekki bara á Akureyri heldur hefur það sannarlega smitað út frá sér. Við höfum fengið að kynnast því og sjá hvað það hefur haft mikið að segja. Það segir okkur hve þýðingarmikið er að efla almennt menntastofnanir vítt og breitt um landið. Oft er talað um að mannauðurinn sé sú auðlind sem 21. öldin mun byggja sitt á og þá skipta menntun, rannsóknir, vísindi og þróun að sjálfsögðu gríðarlega miklu máli.

Mig langar í þessu samhengi að nefna að við höfum upplifað að í sumum stéttum hefur verið skortur á starfsfólki. Í þessari þingsályktunartillögu er sérstaklega talað um hjúkrunarfræðinga. Þetta höfum við séð í öðrum greinum, t.d. í leikskólunum og grunnskólunum. Það hefur verið skortur á fagmenntuðu fólki til starfa í þeim greinum. Það helgast kannski af nokkrum mismunandi þáttum, m.a. af því að það eru takmarkanir á þeim fjölda sem teknir eru inn í skólana til náms á hverju ári. Það eru auðvitað hlutir sem þarf að mínu mati að huga að í fleiri skólum en hér er gerð tillaga um.

Sömuleiðis geta launamálin skipt máli í þessu samhengi, að bæta þurfi kjör þeirra sem vinna í þeim stéttum sem stundum eru kallaðar umönnunarstéttir en eru auðvitað miklu víðfeðmari en svo að það hugtak nái yfir það, hvort sem við erum að tala um heilbrigðisstarfsfólk eða fólk í menntakerfinu. Það er nokkuð sem að mínu mati þarf að horfa á í þessu samhengi. Nýlega var ákveðið að greiða launaauka til lögreglumanna sem vafalaust og örugglega voru vel að því komnir en á sama tíma var svipuðum óskum hafnað hvað varðar hjúkrunarfræðinga, sem er hefðbundin kvennastétt. Ég vona að það sé ekki það sem ræður því að sú stétt fékk ekki kaupauka eða að því var hafnað.

Eftir sem áður er þetta mikilvægt. Í greinargerðinni er vísað til þess að heilmiklar breytingar verði á lýðfræði þjóðarinnar á næstu árum og áratugum. Fyrirsjáanlegar eru þær breytingar að hlutfall aldraðra mun vaxa og lífaldur hækka. Það mun kalla á aukna þjónustu í þessum geira. Vissulega gerir maður ráð fyrir því að einhverjar framfarir í læknavísindunum muni líka þýða að almennt heilbrigði verði betra og lengur en nú er. Það á væntanlega líka sinn þátt í að lífaldurinn hækkar. Engu að síður er ljóst að á næstu árum verður þörf fyrir meiri þjónustu í þessum geira og efling kennslu og menntunar í heilbrigðisvísindum er að sjálfsögðu bara af hinu góða.

Ég legg sérstaklega áherslu á það sem þingmaður Reykjavíkur að mikilvægt er að efla almenna menntun og uppbyggingu menntastofnana, rannsóknir og þróunarstarf á háskólastigi, vítt og breitt um landið. Ég er sannfærður um það og er sammála því sem fram kom í máli hv. þm. Illuga Gunnarssonar, að það er mikilvægt fyrir byggðirnar og líka höfuðborgarsvæðið að eiga sterkt bakland sem landsbyggðin er. Hvorugt fær án hins þrifist að mínu viti. Þess vegna tel ég mikilvægt að við stuðlum að uppbyggingu á þessu sviði og lýsi yfir fullum stuðningi við þá tillögu sem hér er lögð fram.