135. löggjafarþing — 14. fundur,  30. okt. 2007.

afstaða heilbrigðisráðherra til áfengisfrumvarpsins.

[13:58]
Hlusta

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Þetta mál snýst um verslunarfrelsi og ekkert annað. Við erum ekki að tala um að leggja niður allt sem heitir forvarnir. Við erum ekki að tala um að hæstv. heilbrigðisráðherra snúi baki við öllum þeim stofnunum er undir ráðuneyti hans heyra. Ég hef ekki heyrt hann í eitt einasta sinn mælast til þess að forvörnum verði hætt í þjóðfélaginu þrátt fyrir að við skiptum um aðila bak við búðarborðið í verslunum með áfengi.

Mér finnst, og það hefur komið hérna fram, mjög rangt að ætlast til þess að menn skipti hreinlega um skoðun yfir nótt. Það sjá allir að hæstv. heilbrigðisráðherra er sá aðili sem hefur talað hér úr þessum stól einna oftast og mest um þetta mál. Mér þætti mjög óeðlilegt ef hann mundi allt í einu yfir nótt, bara við það að skipta um embætti, breyta þessari prinsippafstöðu sinni sem snýst um verslunarfrelsi. Og ég ítreka þetta með verslunarfrelsið.

Í málflutningi vinstri grænna í þessu máli, eins og í svo mörgu öðru, finnst mér koma fram hjá þessum helstu talsmönnum lýðræðisins, að eigin áliti, ekkert annað en hræðsla við lýðræðið. Ég er ný hér á þingi en mér sýnist á öllu að menn séu almennt þeirrar skoðunar að það sé meiri hætta, ef svo má segja, á að þetta mál fari í gegn og þá á að gera allt til að drepa það niður. Menn hafa talað fyrir því að halda málinu inni í nefndinni.

Leyfum nú lýðræðinu að njóta sín. Klárum þetta mál. Tökum það út úr nefndinni. Leyfið þingheimi að greiða atkvæði um það. Það er eina lýðræðislega atriðið í sambandi við þetta mál sem — eina ferðina enn — snýst um verslunarfrelsi.