135. löggjafarþing — 15. fundur,  31. okt. 2007.

Lánasjóður íslenskra námsmanna.

19. mál
[13:51]
Hlusta

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Það er nú ýmislegt komið á haus í dag. Framsóknarmenn eru búnir að standa á bremsunni í tólf ár og hafa ekki viljað laga til eða hjálpa námsmönnum að komast léttar frá sínum málum. Síðan eru aftur á móti þeir sem fluttu svipað mál fyrir tveim, þrem árum síðan nú komnir svona í einhverja vörn fyrir því að það sé nú kannski ekki alveg hægt að gera þetta allt núna og farnir að draga úr. Þetta er náttúrlega dálítið skondin staða sem er uppi.

Ég ætlaði að taka undir það að þetta frumvarp sé gott fyrir námsmenn, það hjálpar námsmönnum. Það er gott mál. En það er afskaplega sérkennilegt hvernig hlutirnir breytast þegar fólk er í stjórn eða komið í stjórnarandstöðu og eins þegar fólk er búið að vera í stjórnarandstöðu flytjandi mál trekk í trekk og skipta svo um skoðun og eru komnir á bremsuna. (Gripið fram í: Hver er að skipta um skoðun?) Ja, við sjáum sjálfsagt á næstu dögum eða í þinginu í vetur hvort þetta frumvarp verði að lögum.